Sálmur
FIMMTA BÓK
(Sálmur 107–150)
2 Þetta segi þeir sem Jehóva endurheimti,*
þeir sem hann endurheimti úr hendi* andstæðingsins+
3 og safnaði saman frá löndunum,+
frá austri og vestri,*
frá norðri og suðri.+
4 Þeir reikuðu um óbyggðirnar, um eyðimörkina.
Þeir fundu ekki leið til borgar þar sem þeir gátu búið.
5 Þeir voru svangir og þyrstir,
þeir voru máttfarnir og úrvinda.
8 Fólk þakki Jehóva+ fyrir tryggan kærleika hans
og undraverk hans í þágu mannanna+
9 því að hann svalaði þorsta hinna þyrstu
og mettaði hina hungruðu með góðri fæðu.+
10 Sumir bjuggu í dýpsta myrkri,
fangar í eymd og járnum.
11 Þeir höfðu risið gegn orði Guðs,
þeir lítilsvirtu leiðsögn Hins hæsta.+
12 Hann auðmýkti þá hjörtu þeirra með mótlæti,+
þeir hrösuðu og enginn var til að hjálpa þeim.
13 Þeir kölluðu á hjálp Jehóva í neyð sinni,
hann bjargaði þeim úr raunum þeirra.
14 Hann leiddi þá út úr djúpu myrkrinu
og sleit af þeim fjötrana.+
15 Fólk þakki Jehóva fyrir tryggan kærleika hans+
og undraverk hans í þágu mannanna.
16 Hann hefur mölvað koparhliðin
og brotið slagbrandana úr járni.+
18 Þeir misstu alla matarlyst,
þeir nálguðust dauðans dyr.
19 Þeir kölluðu á hjálp Jehóva í neyð sinni,
hann bjargaði þeim úr raunum þeirra.
20 Hann gaf skipun og læknaði þá+
og bjargaði þeim úr gröfinni sem þeir höfðu fallið í.
21 Fólk þakki Jehóva fyrir tryggan kærleika hans
og undraverk hans í þágu mannanna.
22 Þeir skulu færa þakkarfórnir+
og segja frá verkum hans með gleðiópi.
23 Þeir sem sigla á skipum um hafið
og stunda verslun á höfunum miklu,+
24 þeir hafa séð verk Jehóva
og undraverk hans í djúpinu,+
25 hvernig stormur skellur á við skipun hans+
svo að öldur hafsins rísa.
26 Þeir rísa himinhátt
og steypast niður í djúpið.
Þeir missa kjarkinn því að ógæfan vofir yfir.
28 Þá hrópa þeir til Jehóva í neyð sinni+
og hann bjargar þeim úr raunum þeirra.
29 Hann stillir storminn
og öldur hafsins lægir.+
30 Sjómennirnir fagna þegar þær kyrrast
og hann leiðir þá til þeirrar hafnar sem þeir þrá.
31 Fólk þakki Jehóva fyrir tryggan kærleika hans
og undraverk hans í þágu mannanna.+
33 Hann breytir fljótum í eyðimörk,
vatnslindum í skrælnaða jörð+
34 og frjósömu landi í saltsléttu+
vegna illsku fólksins sem býr þar.
35 Hann breytir eyðimörkinni í sefgrónar tjarnir
og lætur uppsprettur myndast í þurru landi.+
38 Hann blessar þá og þeim fjölgar mjög,
hann lætur ekki nautgripum þeirra fækka.+
39 En fólkinu fækkar á ný,
það verður niðurlægt vegna kúgunar, ógæfu og sorgar.
40 Hann eys fyrirlitningu yfir tignarmenn
og lætur þá reika um veglaus öræfi.+