Sálmur
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð.
140 Bjargaðu mér, Jehóva, frá illum mönnum,
verndaðu mig fyrir ofbeldismönnum,+
2 þeim sem upphugsa illt í hjarta sér+
og valda sífellt átökum.
4 Verndaðu mig, Jehóva, fyrir höndum hinna illu,+
verðu mig fyrir ofbeldismönnum,
þeim sem ætla að bregða fæti fyrir mig.
5 Hrokafullir menn leggja gildru fyrir mig,
þeir strengja net meðfram veginum,+
þeir leggja snörur fyrir mig.+ (Sela)
6 Ég segi við Jehóva: „Þú ert Guð minn.
Hlustaðu, Jehóva, þegar ég hrópa á hjálp.“+
7 Jehóva, alvaldur Drottinn, máttugur frelsari minn,
þú skýlir höfði mínu á orrustudeginum.+
8 Jehóva, uppfylltu ekki óskir hinna illu,
láttu ekki ráðabrugg þeirra heppnast svo að þeir verði sjálfumglaðir.+ (Sela)
9 Megi það illa sem menn í kringum mig segja
koma sjálfum þeim í koll.+
10 Glóandi kolum rigni yfir þá.+
12 Ég veit að Jehóva mun verja hina bágstöddu
og láta fátæka ná rétti sínum.+