Ljóðaljóðin
3 Í rúmi mínu um nætur
þráði ég þann sem ég elska.+
Ég þráði hann en hann var ekki þar.+
2 Ég fer á fætur og geng um borgina,
um göturnar og torgin,
og leita að mínum elskaða.
Ég leitaði hans en fann hann ekki.
3 Verðirnir sáu mig á leið sinni um borgina.+
‚Hafið þið séð þann sem ég elska?‘
4 Ég var varla komin fram hjá þeim
þegar ég fann þann sem ég elska.
Ég greip í hann og sleppti honum ekki
fyrr en ég hafði leitt hann í hús móður minnar,+
inn í herbergi hennar sem fæddi mig.
5 Sverjið mér, Jerúsalemdætur,
við gasellur og hindir merkurinnar:
Reynið ekki að kveikja logann, vekja ástina fyrr en hún sjálf vill.“+
6 „Hvað er það sem stígur upp eins og reykjarstrókur í óbyggðunum,
ilmandi af myrru og reykelsi,
af alls konar ilmdufti kaupmanna?“+
7 „Þetta er burðarstóll Salómons.
Sextíu kappar umkringja hann,
hraustir hermenn Ísraels,+
8 allir vopnaðir sverði,
allir þjálfaðir stríðsmenn.
Hver þeirra er gyrtur sverði
til að verjast ógnum næturinnar.“
9 „Það er konunglegur burðarstóll Salómons
sem hann gerði úr viði frá Líbanon.+
10 Stoðirnar eru úr silfri,
bakið úr gulli
og sætið klætt purpuralitri ull.
Jerúsalemdætur skreyttu hann að innan
af ást og umhyggju.“
11 „Komið, Síonardætur,
og sjáið Salómon konung.