Esekíel
25 Orð Jehóva kom aftur til mín: 2 „Mannssonur, snúðu þér í áttina að Ammónítum+ og spáðu gegn þeim.+ 3 Segðu við Ammóníta: ‚Heyrið orð alvalds Drottins Jehóva. Þetta segir alvaldur Drottinn Jehóva: „Þú sagðir: ‚Gott á þig!‘ við helgidóm minn þegar hann var vanhelgaður, við Ísraelsland þegar það var lagt í eyði og við Júdamenn þegar þeir urðu að fara í útlegð. 4 Þess vegna gef ég þig þjóðinni í austri til eignar. Hún setur upp búðir* hjá þér og reisir tjöld sín þar. Menn munu borða ávöxt þinn og drekka mjólk þína. 5 Ég geri Rabba+ að beitilandi fyrir úlfalda og land Ammóníta að hvíldarstað fyrir sauðfé, og þið munuð komast að raun um að ég er Jehóva.“‘“
6 „Alvaldur Drottinn Jehóva segir: ‚Þar sem þú klappaðir saman höndum,+ stappaðir niður fótum og hlakkaðir yfir Ísraelslandi fullur fyrirlitningar+ 7 rétti ég út höndina gegn þér og gef þig þjóðunum að herfangi. Ég uppræti þig meðal þjóðanna og afmái þig sem land.+ Ég útrými þér og þú kemst að raun um að ég er Jehóva.‘
8 Þetta segir alvaldur Drottinn Jehóva: ‚Móab+ og Seír+ hafa sagt: „Júdamenn eru eins og allar aðrar þjóðir.“ 9 Þess vegna geri ég hlíðar Móabs varnarlausar við landamæraborgirnar, fallegustu borgir* landsins, frá Bet Jesímót og Baal Meon allt að Kirjataím.+ 10 Ég gef Móabíta og Ammóníta þjóðinni í austri+ til eignar þannig að Ammóníta verði ekki minnst framar meðal þjóðanna.+ 11 Og ég fullnægi dómi í Móab+ og þeir munu komast að raun um að ég er Jehóva.‘
12 Þetta segir alvaldur Drottinn Jehóva: ‚Edóm hefur verið í hefndarhug gegn Júdamönnum og bakað sér mikla sekt með því að hefna sín á þeim.+ 13 Þess vegna segir alvaldur Drottinn Jehóva: „Ég rétti einnig út höndina gegn Edóm og útrými þar bæði mönnum og búfé. Ég legg landið í eyði.+ Menn munu falla fyrir sverði frá Teman allt til Dedan.+ 14 ‚Ég læt fólk mitt, Ísraelsmenn, koma fram hefndum á Edóm.+ Þeir láta Edómíta finna fyrir reiði minni og heift svo að þeir kynnist hefnd minni,‘+ segir alvaldur Drottinn Jehóva.“‘
15 Þetta segir alvaldur Drottinn Jehóva: ‚Með linnulausum fjandskap sínum og illsku* hafa Filistear reynt að hefna sín og valda eyðingu.+ 16 Þess vegna segir alvaldur Drottinn Jehóva: „Ég rétti út höndina gegn Filisteum,+ útrými Keretum+ og eyði þeim sem eftir eru við sjávarströndina.+ 17 Ég kem fram miklum hefndum á þeim og refsa þeim harðlega. Þeir komast að raun um að ég er Jehóva þegar ég kem fram hefndum á þeim.“‘“