Sálmur
Til tónlistarstjórans. Almút labben.* Söngljóð eftir Davíð.
א [alef]
ב [bet]
3 Þegar óvinir mínir hörfa+
hrasa þeir og tortímast fyrir augliti þínu
4 því að þú verð málstað minn og rétt.
Þú situr í hásæti þínu og dæmir af réttvísi.+
ג [gimel]
5 Þú hefur hastað á þjóðirnar+ og gereytt hinum illu,
afmáð nafn þeirra um alla eilífð.
6 Óvininum var rutt úr vegi fyrir fullt og allt.
Þú jafnaðir borgir þeirra við jörðu,
enginn minnist þeirra framar.+
ה [he]
ו [vá]
ז [zajin]
11 Lofsyngið Jehóva sem býr á Síon,
kunngerið verk hans meðal þjóðanna.+
ח [het]
13 Vertu mér góður, Jehóva, sjáðu hve þjakaður ég er af völdum óvina minna,
þú sem lyftir mér upp frá hliðum dauðans,+
14 svo að ég geti sagt frá dásemdarverkum þínum í hliðum Síonar*+
og fagnað yfir björgun þinni.+
ט [tet]
15 Þjóðirnar hafa fallið í gryfjuna sem þær grófu,
flækt fót sinn í netinu sem þær lögðu.+
16 Jehóva þekkist á dómum sínum.+
Hinir illu gengu í eigin gildru.+
(Higgaíon.* Sela)
י [jód]
17 Hinir vondu hverfa í gröfina,*
allar þjóðir sem gleyma Guði.
כ [kaf]
19 Láttu til þín taka, Jehóva! Láttu ekki dauðlegan manninn hafa betur.
Þjóðirnar hljóti dóm frammi fyrir þér.+
20 Skelfdu þær, Jehóva,+
gerðu þeim ljóst að þær eru dauðlegar. (Sela)