Þriðja Mósebók
14 Jehóva hélt áfram og sagði við Móse: 2 „Þetta eru lögin sem holdsveikur maður á að fylgja daginn sem staðfest er að hann sé hreinn og hann er leiddur fyrir prestinn.+ 3 Presturinn á að fara út fyrir búðirnar og skoða hann. Ef maðurinn er læknaður af holdsveikinni 4 á presturinn að biðja hann um að koma með tvo hreina fugla, sedrusvið, skarlatsrautt efni og ísóp fyrir hreinsunina.+ 5 Presturinn skal gefa fyrirmæli um að öðrum fuglinum sé slátrað yfir leirkeri með fersku vatni. 6 Hann á síðan að taka lifandi fuglinn ásamt sedrusviðnum, skarlatsrauða efninu og ísópnum og dýfa því öllu saman í blóð fuglsins sem var slátrað yfir ferska vatninu. 7 Hann á að sletta því sjö sinnum á þann sem er að hreinsa sig af holdsveikinni og úrskurða hann hreinan. Síðan á hann að sleppa lifandi fuglinum úti á víðavangi.+
8 Sá sem hreinsar sig skal þvo föt sín, raka af sér allt hárið og baða sig í vatni og er þá hreinn. Eftir það má hann koma inn í búðirnar en hann á að halda til fyrir utan tjald sitt í sjö daga. 9 Á sjöunda degi á hann að raka af sér allt hár á höfði og höku og augabrúnirnar. Þegar hann hefur rakað af sér allt hárið á hann að þvo föt sín og baða sig í vatni og verður þá hreinn.
10 Á áttunda degi á hann að taka tvö gallalaus hrútlömb, eina gallalausa gimbur,+ ekki eldri en veturgamla, þrjá tíundu hluta úr efu* af fínu olíublönduðu mjöli í kornfórn+ og einn lóg* af olíu.+ 11 Presturinn sem úrskurðar manninn hreinan skal leiða hann ásamt fórnum hans fram fyrir Jehóva við inngang samfundatjaldsins. 12 Presturinn skal taka annað hrútlambið og færa það að sektarfórn+ ásamt lóginum af olíu og veifa fram og aftur sem veififórn frammi fyrir Jehóva.+ 13 Síðan á hann að slátra hrútlambinu á heilögum stað þar sem venja er að slátra syndafórninni+ og brennifórninni því að sektarfórnin tilheyrir prestinum+ eins og syndafórnin. Hún er háheilög.+
14 Því næst á presturinn að taka nokkuð af blóði sektarfórnarinnar og bera það á hægri eyrnasnepil þess sem er að hreinsa sig, á þumalfingur hægri handar hans og stórutá hægri fótar. 15 Hann á að taka nokkuð af lóginum af olíunni+ og hella í vinstri lófa sér. 16 Presturinn skal dýfa vísifingri hægri handar í olíuna sem hann er með í vinstri lófanum og sletta nokkru af henni með fingrinum sjö sinnum frammi fyrir Jehóva. 17 Presturinn ber síðan nokkuð af olíunni sem eftir er í lófa hans á hægri eyrnasnepil þess sem er að hreinsa sig, á þumalfingur hægri handar hans og stórutá hægri fótar, yfir blóð sektarfórnarinnar. 18 Presturinn ber það sem eftir er af olíunni í lófa hans á höfuð þess sem hreinsar sig og friðþægir þannig fyrir hann frammi fyrir Jehóva.+
19 Presturinn skal færa syndafórnina+ og friðþægja fyrir þann sem hreinsar sig og síðan skal hann slátra brennifórninni. 20 Hann á að bera fram brennifórnina og kornfórnina+ á altarið og friðþægja fyrir manninn+ og þá verður hann hreinn.+
21 En ef hann er fátækur og hefur ekki efni á þessu á hann að taka eitt hrútlamb í sektarfórn og veififórn til að friðþægja fyrir sjálfan sig, ásamt tíunda hluta úr efu* af fínu olíublönduðu mjöli í kornfórn, lógi af olíu 22 og tveim turtildúfum eða tveim ungum dúfum, eftir því sem hann hefur efni á. Önnur er færð að syndafórn en hin að brennifórn.+ 23 Hann á að færa prestinum þetta á áttunda degi+ við inngang samfundatjaldsins frammi fyrir Jehóva til að staðfesta að hann sé hreinn.+
24 Presturinn á að taka sektarfórnarhrútinn+ og lóginn af olíu og veifa því fram og aftur sem veififórn frammi fyrir Jehóva.+ 25 Hann skal síðan slátra sektarfórnarhrútnum, taka nokkuð af blóði hans og bera það á hægri eyrnasnepil þess sem er að hreinsa sig, á þumalfingur hægri handar hans og stórutá hægri fótar.+ 26 Presturinn á að hella nokkru af olíunni í vinstri lófa sér+ 27 og sletta nokkru af olíunni í lófanum með vísifingri hægri handar sjö sinnum frammi fyrir Jehóva. 28 Hann á að bera nokkuð af olíunni í lófanum á hægri eyrnasnepil þess sem er að hreinsa sig, á þumalfingur hægri handar hans og stórutá hægri fótar, á sömu staði og hann bar blóð sektarfórnarinnar. 29 Presturinn á síðan að bera það sem eftir er af olíunni í lófa hans á höfuð þess sem hreinsar sig til að friðþægja fyrir hann frammi fyrir Jehóva.
30 Hann á að færa fram turtildúfurnar eða ungu dúfurnar, eftir því sem hann hefur efni á,+ 31 aðra að syndafórn en hina að brennifórn+ ásamt kornfórninni. Presturinn skal friðþægja fyrir þann sem hreinsar sig frammi fyrir Jehóva.+
32 Þetta eru lögin um þann sem var holdsveikur en hefur takmörkuð fjárráð þegar á að staðfesta að hann sé orðinn hreinn.“
33 Jehóva sagði síðan við Móse og Aron: 34 „Þegar þið komið inn í Kanaansland+ sem ég gef ykkur til eignar+ og ég læt holdsveiki spilla húsi í landi ykkar+ 35 á eigandi hússins að koma og segja við prestinn: ‚Það er komin einhvers konar skella á vegg í húsi mínu.‘ 36 Presturinn skal þá gefa fyrirmæli um að rýma húsið áður en hann kemur til að skoða skelluna til að hann úrskurði ekki allt sem er í húsinu óhreint. Síðan á hann að koma og skoða húsið. 37 Hann skoðar það og ef hann finnur gulgrænar eða rauðleitar skellur á veggjunum og þær virðast liggja dýpra en veggurinn í kring 38 á hann að ganga út fyrir húsdyrnar og loka húsinu í sjö daga.+
39 Presturinn á síðan að koma aftur á sjöunda degi og skoða húsið. Ef skellan hefur breiðst út um húsveggina 40 á presturinn að fyrirskipa að steinarnir með skellunum verði fjarlægðir og þeim hent á óhreinan stað fyrir utan borgina. 41 Hann á að láta skafa húsið rækilega að innan, og kalkinu af veggjunum og steinlíminu sem er fjarlægt skal hent á óhreinan stað fyrir utan borgina. 42 Síðan á að setja nýja steina í stað þeirra sem voru fjarlægðir, nota nýtt steinlím og kalkbera húsið að nýju.
43 Ef skellurnar brjótast út á nýjan leik í húsinu eftir að steinarnir hafa verið fjarlægðir og húsið skafið og kalkborið að nýju 44 á presturinn að koma aftur og skoða það. Ef skellurnar hafa breiðst út í húsinu er þetta illkynja holdsveiki.+ Húsið er óhreint. 45 Hann á að sjá til þess að húsið sé rifið. Það á að fara með steinana, timbrið og allt kalk og steinlím á óhreinan stað fyrir utan borgina.+ 46 Sá sem fer inn í húsið meðan það er lokað+ verður óhreinn til kvölds.+ 47 Sá sem leggur sig í húsinu á að þvo föt sín og sá sem borðar í húsinu á að þvo föt sín.
48 En ef presturinn kemur og sér að skellur hafa ekki breiðst út um húsið eftir að það var kalkborið að nýju á hann að úrskurða að húsið sé hreint því að skellurnar eru horfnar. 49 Hann á að taka tvo fugla, sedrusvið, skarlatsrautt efni og ísóp til að hreinsa húsið.*+ 50 Hann á að slátra öðrum fuglinum yfir leirkeri með fersku vatni. 51 Síðan á hann að taka sedrusviðinn, ísópinn, skarlatsrauða efnið og lifandi fuglinn, dýfa þeim í blóð fuglsins sem var slátrað yfir ferska vatninu og sletta því sjö sinnum í átt að húsinu.+ 52 Hann á að hreinsa húsið* með blóði fuglsins, ferska vatninu, lifandi fuglinum, sedrusviðnum, ísópnum og skarlatsrauða efninu. 53 Eftir það á hann að sleppa lifandi fuglinum á víðavangi fyrir utan borgina og friðþægja fyrir húsið. Þá er það hreint.
54 Þetta eru lögin um hvers kyns holdsveiki, sýkingar í hársverði eða skeggi,+ 55 holdsveiki í fötum+ eða húsum+ 56 og um bólgur, hrúður og bletti á húð+ 57 til að skera úr um hvenær eitthvað er óhreint og hvenær eitthvað er hreint.+ Þetta eru lögin um holdsveiki.“+