Opinberun Jóhannesar
3 Skrifaðu engli safnaðarins í Sardes: Þetta segir sá sem er með sjö anda Guðs+ og stjörnurnar sjö:+ ‚Ég þekki verk þín og veit að þú ert sagður vera lifandi, en þú ert samt dauður.+ 2 Vaknaðu+ og styrktu það sem eftir er og var að dauða komið því að ég sé ekki að verkum þínum sé lokið frammi fyrir Guði mínum. 3 Mundu hvað þú hefur fengið og hvað þú hefur heyrt. Haltu þig við það og iðrastu.+ Ef þú vaknar ekki kem ég eins og þjófur+ og þú veist ekki á hvaða tíma ég kem.+
4 Þó eru fáeinir* hjá þér í Sardes sem hafa ekki óhreinkað föt sín+ og þeir munu ganga með mér í hvítum fötum+ af því að þeir eru þess verðugir. 5 Já, sá sem sigrar+ mun klæðast hvítum fötum+ og ég mun aldrei stroka nafn hans út úr bók lífsins+ heldur viðurkenni ég nafn hans frammi fyrir föður mínum og englum hans.+ 6 Sá sem hefur eyru heyri hvað andinn segir söfnuðunum.‘
7 Skrifaðu engli safnaðarins í Fíladelfíu: Þetta segir sá sem er heilagur+ og sannur,+ sá sem hefur lykil Davíðs,+ sá sem opnar þannig að enginn loki og lokar þannig að enginn opni: 8 ‚Ég þekki verk þín. Sjáðu, ég hef opnað fyrir þér dyr+ sem enginn getur lokað. Ég veit að þú hefur lítinn mátt en þú hefur samt hlýtt orðum mínum og ekki afneitað nafni mínu. 9 Ég læt suma úr samkundu Satans, þá sem segjast vera Gyðingar en eru það ekki+ heldur ljúga, koma og krjúpa* við fætur þér og læt þá vita að ég elska þig. 10 Þú hefur fylgt því sem þú heyrðir um þolgæði mitt.*+ Þess vegna varðveiti ég þig á reynslustundinni+ sem á að koma yfir alla heimsbyggðina til að reyna þá sem búa á jörðinni. 11 Ég kem fljótt.+ Haltu fast við það sem þú hefur til að enginn taki kórónu þína.+
12 Þann sem sigrar geri ég að stólpa í musteri Guðs míns og hann fer aldrei út þaðan aftur. Ég skrifa á hann nafn Guðs míns+ og nafn borgar Guðs míns, hinnar nýju Jerúsalem+ sem kemur ofan af himni frá Guði mínum, og einnig nýja nafnið mitt.+ 13 Sá sem hefur eyru heyri hvað andinn segir söfnuðunum.‘
14 Skrifaðu engli safnaðarins í Laódíkeu:+ Þetta segir sá sem er kallaður Amen,+ votturinn trúi og sanni,+ fyrsta sköpunarverk Guðs:+ 15 ‚Ég þekki verk þín og veit að þú ert hvorki kaldur né heitur. Ég vildi að þú værir annaðhvort kaldur eða heitur. 16 En þar sem þú ert hálfvolgur en hvorki heitur+ né kaldur+ ætla ég að skyrpa þér út úr munni mínum. 17 Þú segir: „Ég er ríkur,+ hef aflað mér auðæfa og þarfnast einskis,“ en þú veist ekki að þú ert vesæll, aumkunarverður, fátækur, blindur og nakinn. 18 Ég ráðlegg þér þess vegna að kaupa af mér gull, hreinsað í eldi, svo að þú verðir ríkur, hvít föt svo að þú getir klætt þig og verðir þér ekki til skammar með nekt þinni+ og augnsmyrsl til að bera á augu þín+ svo að þú sjáir.+
19 Ég ávíta og aga alla sem ég elska.+ Vertu því kappsamur og iðrastu.+ 20 Ég stend við dyrnar og banka. Ef einhver heyrir rödd mína og opnar dyrnar geng ég inn í hús hans og borða kvöldverð með honum og hann með mér. 21 Þeim sem sigrar+ leyfi ég að setjast hjá mér í hásæti mitt+ eins og ég sigraði og settist+ hjá föður mínum í hásæti hans. 22 Sá sem hefur eyru heyri hvað andinn segir söfnuðunum.‘“