Daníel
9 Á fyrsta stjórnarári Daríusar+ Ahasverussonar, sem var kominn af Medum og hafði verið gerður að konungi yfir ríki Kaldea,+ 2 á fyrsta ári stjórnartíðar hans, komst ég, Daníel, að raun um með hjálp bókanna* hve mörg ár Jerúsalem átti að liggja í eyði samkvæmt orði Jehóva til Jeremía spámanns.+ Það voru 70 ár.+ 3 Ég sneri mér þá til Jehóva, hins sanna Guðs. Ég bað innilega til hans og fastaði+ í hærusekk og ösku. 4 Ég bað til Jehóva Guðs míns, gerði játningu og sagði:
„Jehóva, hinn sanni Guð, þú mikli og mikilfenglegi Guð sem heldur sáttmálann og sýnir þeim tryggan kærleika+ sem elska þig og halda boðorð þín.+ 5 Við höfum syndgað og brotið af okkur, framið illskuverk og gert uppreisn.+ Við höfum vikið frá boðorðum þínum og ákvæðum. 6 Við hlustuðum ekki á þjóna þína, spámennina,+ sem töluðu í þínu nafni til konunga okkar og höfðingja, forfeðra okkar og allra íbúa landsins. 7 Þitt er réttlætið, Jehóva, en skömmin er okkar allt til þessa dags, okkar Júdamanna, Jerúsalembúa og alls Ísraels, nær og fjær, í öllum þeim löndum sem þú tvístraðir þeim til því að þeir voru þér ótrúir.+
8 Æ, Jehóva, skömmin er okkar, konunga okkar, höfðingja og forfeðra, því að við höfum syndgað gegn þér. 9 Jehóva Guð okkar er miskunnsamur og fús til að fyrirgefa+ en við höfum gert uppreisn gegn honum.+ 10 Við höfum ekki hlýtt rödd Jehóva Guðs okkar með því að fylgja lögunum sem hann gaf okkur fyrir milligöngu þjóna sinna, spámannanna.+ 11 Allur Ísrael hefur brotið lög þín og snúið baki við þér með því að óhlýðnast þér. Þess vegna léstu okkur kenna á bölvuninni og eiðnum sem skrifað er um í lögum Móse, þjóns hins sanna Guðs,+ enda höfum við syndgað gegn þér. 12 Þú stóðst við orð þín sem þú talaðir gegn okkur+ og valdhöfum okkar sem ríktu yfir okkur* með því að leiða yfir okkur miklar hörmungar. Hvergi undir himninum hefur átt sér stað slík ógæfa eins og sú sem varð í Jerúsalem.+ 13 Allar þessar hörmungar eru komnar yfir okkur samkvæmt því sem stendur í lögum Móse.+ Samt höfum við ekki sárbænt Jehóva Guð okkar um miskunn.* Við höfum hvorki sagt skilið við syndir okkar+ né gefið gaum að sannleika þínum.*
14 Jehóva var á verði og leiddi hörmungarnar yfir okkur enda er Jehóva Guð okkar réttlátur í öllu sem hann gerir. En samt höfum við ekki hlýtt honum.+
15 Jehóva Guð okkar, þú sem leiddir fólk þitt út úr Egyptalandi með máttugri hendi+ og skapaðir þér nafn sem þú berð enn í dag,+ við höfum syndgað og gert það sem er illt. 16 Jehóva, þú sem hefur alltaf gert það sem er réttlátt,+ snúðu reiði þinni og heift frá borg þinni, Jerúsalem, þínu heilaga fjalli, því að allir í kringum okkur hæðast að Jerúsalem og fólki þínu vegna synda okkar og afbrota forfeðra okkar.+ 17 Hlustaðu nú, Guð okkar, á bæn þjóns þíns og grátbeiðni og láttu andlit þitt lýsa+ á rústir helgidóms þíns+ sjálfs þín vegna, Jehóva. 18 Ljáðu mér eyra, Guð minn, og hlustaðu. Opnaðu augun og sjáðu hve illa er komið fyrir okkur og borginni sem ber nafn þitt. Við sárbænum þig ekki vegna okkar eigin réttlætisverka heldur vegna mikillar miskunnar þinnar.+ 19 Jehóva, hlustaðu. Jehóva, fyrirgefðu okkur.+ Jehóva, veittu okkur athygli og láttu til þín taka! Frestaðu því ekki, Guð minn, sjálfs þín vegna því að borg þín og fólk þitt er kennt við nafn þitt.“+
20 Meðan ég var enn að tala og biðjast fyrir og játa syndir mínar og syndir þjóðar minnar, Ísraels, og biðja fyrir heilögu fjalli Guðs míns+ frammi fyrir Jehóva Guði mínum, 21 já, meðan ég var enn að biðjast fyrir kom Gabríel+ til mín, maðurinn sem ég hafði séð áður í sýninni.+ Það var um kvöldfórnartímann og ég var örþreyttur. 22 Hann veitti mér skilning og sagði:
„Daníel, ég er kominn til að veita þér innsæi og skilning. 23 Þegar þú byrjaðir bæn þína fékk ég orðsendingu og ég er kominn til að greina þér frá henni því að þú ert mikils metinn.*+ Taktu nú vel eftir og reyndu að skilja sýnina.
24 Sjötíu vikur* eru ætlaðar þjóð þinni og þinni heilögu borg,+ til að binda enda á afbrotin og afmá syndina,+ til að friðþægja fyrir misgerðina+ og koma á eilífu réttlæti,+ til að innsigla sýnina og spádóminn*+ og smyrja hið háheilaga.* 25 Þú skalt vita og skilja að frá því að skipunin er gefin um að endurreisa og endurbyggja Jerúsalem+ þar til Messías,*+ leiðtoginn,+ kemur fram líða 7 vikur og 62 vikur.+ Hún verður endurreist og endurbyggð með torgi og síki, en þó á þrengingatímum.
26 Eftir þessar 62 vikur verður Messías afmáður*+ og allslaus.+
Leiðtogi nokkur kemur með her sinn og eyðir borginni og helgidóminum.+ Eyðingin kemur eins og flóð. Stríð mun geisa allt til enda, eyðing er fastráðin.+
27 Hann mun halda sáttmálanum í gildi fyrir marga í eina viku. Og um miðja vikuna afnemur hann sláturfórn og fórnargjöf.+
Á væng viðurstyggðanna kemur sá sem veldur eyðingu.+ Og því sem var ákveðið verður úthellt yfir hana sem liggur í eyði, allt til gereyðingar.“