Postulasagan
1 Fyrri frásöguna, Þeófílus, tók ég saman um allt sem Jesús gerði og kenndi frá upphafi+ 2 til þess dags þegar hann var hrifinn upp til himna,+ en áður hafði hann gefið postulunum, sem hann hafði útvalið,+ leiðbeiningar fyrir milligöngu heilags anda. 3 Eftir að hafa þjáðst sýndi hann þeim með mörgum óyggjandi sönnunum að hann væri lifandi.+ Hann birtist þeim um 40 daga skeið og talaði um ríki Guðs.+ 4 Meðan hann var með þeim sagði hann þeim: „Farið ekki frá Jerúsalem+ heldur bíðið eftir því sem faðirinn hefur lofað+ og þið heyrðuð mig tala um 5 því að Jóhannes skírði með vatni en þið verðið skírðir með heilögum anda+ eftir fáeina daga.“
6 Þegar þeir voru samankomnir spurðu þeir hann: „Drottinn, ætlarðu að endurreisa Ísraelsríki núna?“+ 7 Hann svaraði þeim: „Þið þurfið ekki að vita tíma eða tíðir sem faðirinn einn hefur vald til að ákveða.+ 8 En þið fáið kraft þegar heilagur andi kemur yfir ykkur+ og þið verðið vottar mínir+ í Jerúsalem,+ í allri Júdeu og Samaríu+ og til endimarka* jarðar.“+ 9 Eftir að hann hafði sagt þetta horfðu þeir á hvernig hann lyftist upp til himins og ský huldi hann svo að þeir sáu hann ekki lengur.+ 10 Meðan þeir störðu til himins á eftir honum stóðu skyndilega hjá þeim tveir menn í hvítum fötum+ 11 og sögðu: „Galíleumenn, hvers vegna standið þið og horfið til himins? Þessi Jesús, sem var hrifinn frá ykkur til himins, mun koma á sama hátt og þið sáuð hann fara til himins.“
12 Þá sneru þeir aftur til Jerúsalem+ frá Olíufjallinu sem svo er nefnt og er skammt frá Jerúsalem, aðeins hvíldardagsleið þaðan. 13 Þegar þeir komu þangað fóru þeir upp í herbergið á efri hæðinni þar sem þeir dvöldust. Þetta voru þeir Pétur og Jóhannes, Jakob og Andrés, Filippus og Tómas, Bartólómeus og Matteus, Jakob Alfeusson, Símon hinn kappsami og Júdas Jakobsson.+ 14 Þeir báðu allir stöðugt og með einum huga ásamt nokkrum konum,+ bræðrum Jesú+ og Maríu móður hans.+
15 Einn daginn stóð Pétur upp á meðal bræðranna og systranna (alls voru þar um 120 manns) og sagði: 16 „Menn, bræður, ritningarstaðurinn þurfti að rætast þar sem Davíð spáði fyrir atbeina heilags anda um Júdas,+ en hann vísaði þeim veginn sem handtóku Jesú.+ 17 Hann tilheyrði okkar hópi+ og honum var falin sama þjónusta og okkur. 18 (Þessi maður keypti landspildu fyrir laun ranglætis síns.+ Hann steyptist á höfuðið, kviðurinn rifnaði* og iðrin lágu öll úti.+ 19 Allir Jerúsalembúar fréttu þetta og spildan var því kölluð Akeldamak á máli þeirra, það er ‚Blóðreitur‘.) 20 Í Sálmunum stendur skrifað: ‚Bústaður hans leggist í eyði og enginn skal búa þar,‘+ og: ‚Annar taki við umsjónarstarfi hans.‘+ 21 Það er því nauðsynlegt að í hans stað komi einn þeirra manna sem var með okkur allan þann tíma sem Drottinn Jesús vann starf sitt* meðal okkar, 22 allt frá því að Jóhannes skírði hann+ til þess dags þegar hann var hrifinn upp frá okkur.+ Þessi maður þarf að vera vottur með okkur að upprisu hans.“+
23 Þeir tilnefndu því tvo, Jósef, sem var kallaður Barsabbas, einnig nefndur Jústus, og Matthías. 24 Síðan báðust þeir fyrir og sögðu: „Jehóva,* þú sem þekkir hjörtu allra,+ sýndu hvorn þessara manna þú hefur valið 25 til að taka við þessari þjónustu og postulaembætti sem Júdas yfirgaf til að fara sína eigin leið.“+ 26 Þeir vörpuðu síðan hlutkesti um þá+ og hlutur Matthíasar kom upp. Hann var tekinn í tölu* postulanna með þeim ellefu.