13 Vitur sonur þiggur aga föður síns+
en hinn háðgjarni hlustar ekki á leiðréttingu.+
2 Maðurinn nýtur góðs af ávexti munns síns+
en hinir svikulu þrá ofbeldi.
3 Sá sem gætir orða sinna varðveitir líf sitt+
en illa fer fyrir þeim sem lætur allt flakka.+
4 Hinn lati á sér margar óskir og er þó allslaus+
en iðinn maður mettast ríkulega.+
5 Hinn réttláti hatar lygar+
en verk hinna illu eru til smánar og skammar.
6 Réttlætið verndar hinn saklausa+
en illskan verður syndaranum að falli.
7 Einn þykist vera ríkur en á þó ekkert,+
annar þykist vera fátækur en á þó mikinn auð.
8 Auður ríks manns er lausnargjald fyrir líf hans+
en enginn hótar hinum fátæka.+
9 Ljós réttlátra logar skært+
en á lampa hinna illu slokknar.+
10 Hroki kveikir ekkert nema deilur+
en viska er hjá þeim sem leita ráða.+
11 Skjótfenginn auður rýrnar+
en sá sem safnar smátt og smátt verður sífellt ríkari.
12 Langdregin eftirvænting gerir hjartað sjúkt+
en uppfyllt ósk er lífstré.+
13 Sá sem fyrirlítur leiðsögn mun gjalda þess+
en sá sem virðir boðorðið hlýtur umbun.+
14 Kennsla hins vitra er lífslind+
og forðar frá snörum dauðans.
15 Vitur maður hlýtur velþóknun
en margar raunir eru á vegi hinna svikulu.
16 Þekking er skynsömum manni leiðarljós+
en heimskinginn afhjúpar heimsku sína.+
17 Vondur sendiboði kemst í ógöngur+
en trúr sendimaður veitir lækningu.+
18 Fátækt og skömm hlýtur sá sem hafnar aga
en sá sem tekur til sín áminningar hlýtur heiður.+
19 Uppfyllt ósk er sálinni sæt+
en að hverfa frá hinu illa er heimskingjunum andstyggð.+
20 Sá sem umgengst hina vitru verður vitur+
en illa fer fyrir þeim sem hefur félagsskap við heimskingja.+
21 Ógæfan eltir syndarana+
en velgengni er laun hinna réttlátu.+
22 Góður maður lætur eftir sig arf handa barnabörnunum
en auður syndarans kemur í hlut hins réttláta.+
23 Plægður akur hins fátæka gefur mikla fæðu
en óréttlæti getur sópað henni burt.
24 Sá hatar son sinn sem hlífir honum við refsingu+
en sá sem elskar son sinn agar hann.+
25 Hinn réttláti borðar sig saddan+
en magi hinna illu er tómur.+