Þriðja Mósebók
20 Jehóva sagði nú við Móse: 2 „Segðu við Ísraelsmenn: ‚Ef Ísraelsmaður eða útlendingur sem býr í Ísrael gefur Mólek nokkurn af afkomendum sínum skal hann tekinn af lífi.+ Fólkið í landinu á að grýta hann til bana. 3 Ég snýst gegn þeim manni og uppræti hann úr þjóðinni* vegna þess að hann hefur gefið Mólek afkomanda sinn, óhreinkað helgidóm minn+ og vanhelgað heilagt nafn mitt. 4 Ef fólkið í landinu lokar vísvitandi augunum fyrir því sem maðurinn gerir þegar hann gefur Mólek afkomanda sinn og það tekur hann ekki af lífi+ 5 mun ég sjálfur snúast gegn manninum og fjölskyldu hans.+ Ég uppræti hann úr þjóðinni* og sömuleiðis alla sem stunda andlegt vændi með Mólek ásamt honum.
6 Ef einhver leitar til andamiðla+ og spásagnarmanna+ til að stunda andlegt vændi með þeim snýst ég gegn honum og uppræti hann úr þjóð hans.*+
7 Þið skuluð helga ykkur og verða heilög+ því að ég er Jehóva Guð ykkar. 8 Þið skuluð halda ákvæði mín og fara eftir þeim.+ Ég er Jehóva, sá sem helgar ykkur.+
9 Ef einhver bölvar* föður sínum eða móður á að taka hann af lífi.+ Hann á sjálfur sök á dauða sínum* því að hann bölvaði föður sínum eða móður.
10 Maður sem fremur hjúskaparbrot með konu annars manns skal tekinn af lífi. Ótrúi maðurinn og ótrúa konan skulu bæði líflátin.+ 11 Maður sem leggst með konu föður síns hefur kallað skömm yfir* föður sinn.+ Þau skulu bæði tekin af lífi. Þau eiga sjálf sök á dauða sínum.* 12 Ef maður leggst með tengdadóttur sinni skulu þau bæði líflátin. Þau hafa brotið gegn því sem er eðlilegt. Þau eiga sjálf sök á dauða sínum.*+
13 Ef maður leggst með karlmanni á sama hátt og hann myndi leggjast með konu hafa þeir báðir framið viðurstyggilegt athæfi.+ Þeir skulu teknir af lífi. Þeir eiga sjálfir sök á dauða sínum.*
14 Ef maður hefur kynmök við konu og móður hennar er það ósómi.*+ Það á að lífláta manninn ásamt konunum og brenna þau í eldi+ til að slíkur ósómi viðgangist ekki á meðal ykkar.
15 Ef karlmaður hefur samfarir við dýr skal hann tekinn af lífi og dýrið skal drepið.+ 16 Ef kona gengur fyrir dýr til að hafa samfarir við það+ á að lífláta konuna og drepa dýrið. Þau skulu tekin af lífi. Þau eiga sjálf sök á dauða sínum.*
17 Ef maður hefur kynmök við systur sína, dóttur föður síns eða dóttur móður sinnar, og þau sjá nekt hvort annars er það skömm.+ Þau skulu tekin af lífi í augsýn fólksins. Hann hefur kallað skömm yfir* systur sína og þarf að svara til saka fyrir brot sitt.
18 Ef maður leggst með konu sem er á blæðingum og hefur kynmök við hana hafa þau bæði sýnt að blóðið er þeim ekki heilagt.+ Þau skulu bæði upprætt úr þjóðinni.*
19 Maður má ekki hafa kynmök við móðursystur sína eða föðursystur því að þá kallar hann skömm yfir náinn ættingja.+ Þau skulu svara til saka fyrir brot sitt. 20 Maður sem leggst með konu föðurbróður síns hefur kallað skömm yfir* föðurbróður sinn.+ Þau þurfa að svara til saka fyrir synd sína og skulu deyja barnlaus. 21 Ef maður tekur konu bróður síns er það viðbjóðslegt.+ Hann hefur kallað skömm yfir* bróður sinn og þau skulu deyja barnlaus.
22 Þið skuluð halda öll ákvæði mín og lög+ og fara eftir þeim+ svo að landið sem ég leiði ykkur inn í til að setjast þar að spúi ykkur ekki.+ 23 Þið megið ekki fylgja siðum þjóðanna sem ég hrek burt undan ykkur+ því að þær hafa gert allt þetta og mér býður við þeim.+ 24 Þess vegna sagði ég við ykkur: „Þið munuð leggja undir ykkur land þeirra og ég gef ykkur það til eignar, land sem flýtur í mjólk og hunangi.+ Ég er Jehóva Guð ykkar sem hef aðgreint ykkur frá þjóðunum.“+ 25 Þið skuluð gera greinarmun á hreinu dýri og óhreinu og á óhreinum fugli og hreinum.+ Þið megið ekki gera ykkur viðurstyggileg með því að borða dýr, fugl eða nokkuð sem skríður á jörðinni og ég hef aðgreint og sagt að sé ykkur óhreint.+ 26 Þið skuluð vera mér heilög því að ég, Jehóva, er heilagur+ og ég aðgreini ykkur frá þjóðunum til að þið verðið mín eign.+
27 Karl eða konu sem er andamiðill eða stundar spásagnir* skal taka af lífi.+ Fólkið á að grýta þau til bana. Þau eiga sjálf sök á dauða sínum.‘“*