113 Lofið Jah!
Þið sem þjónið Jehóva, lofið hann,
lofið nafn Jehóva.
2 Nafn Jehóva sé lofað
héðan í frá og að eilífu.+
3 Frá sólarupprás til sólarlags
sé nafn Jehóva lofað.+
4 Jehóva er hafinn yfir allar þjóðir,+
dýrð hans er himnunum hærri.+
5 Hver er sem Jehóva Guð okkar,+
hann sem býr í hæðum?
6 Hann beygir sig niður til að líta á himin og jörð.+
7 Hann reisir lítilmagnann úr duftinu,
lyftir hinum fátæka úr öskunni+
8 og lætur hann setjast hjá hefðarfólki,
hjá hefðarfólki þjóðar sinnar.
9 Ófrjóu konunni fær hann heimili,
hún eignast börn og verður hamingjusöm móðir.+
Lofið Jah!