Sálmur
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð.
31 Hjá þér, Jehóva, hef ég leitað athvarfs.+
Vertu mér fjallavígi,
varnarvirki mér til bjargar.+
6 Ég hata þá sem tilbiðja einskis nýt skurðgoð,
ég legg traust mitt á Jehóva.
7 Ég gleðst innilega yfir tryggum kærleika þínum
því að þú hefur séð neyð mína+
og veist hve þjáður ég er.
8 Þú hefur ekki framselt mig í hendur óvinarins
heldur leitt mig í öruggt skjól.*
9 Vertu mér góður, Jehóva, því að ég er í öngum mínum,
augu mín eru myrkvuð af angist+ og allur líkami minn* veikburða.+
Kraftar mínir eru á þrotum vegna syndar minnar,
bein mín veslast upp.+
11 Allir andstæðingar mínir smána mig,+
ekki síst nágrannar mínir.
Kunningja mína hryllir við mér,
þeir flýja þegar þeir sjá mig úti á götu.+
12 Ég er horfinn úr minni* þeirra, gleymdur eins og dauður maður,
ég er eins og brotið ker.
13 Ég heyri að margir baktala mig,
ógn steðjar að úr öllum áttum.+
Þeir sameinast gegn mér
og leggja á ráðin um að drepa mig.+
15 Dagar mínir eru í þinni hendi,
bjargaðu mér úr greipum óvina minna og þeirra sem ofsækja mig.+
16 Láttu auglit þitt lýsa yfir þjón þinn,+
frelsaðu mig vegna þíns trygga kærleika.
17 Jehóva, láttu mig ekki verða mér til skammar þegar ég hrópa til þín,+
láttu illvirkjana verða sér til skammar,+
18 Láttu lygavarir verða hljóðar,+
varir sem lítilsvirða hina réttlátu með hroka og fyrirlitningu.
19 Góðvild þín er sannarlega mikil!+
Þú hefur geymt hana handa þeim sem óttast þig+
og sýnt öllum að þú ert góður við þá sem leita athvarfs hjá þér.+
22 Ég fylltist örvæntingu og sagði:
„Ég dey og hverf úr augsýn þinni.“+
En þú heyrðir þegar ég hrópaði til þín á hjálp.+