Jobsbók
35 Elíhú hélt áfram:
2 „Ertu svo sannfærður um að þú hafir rétt fyrir þér að þú segir:
‚Ég er réttlátari en Guð‘?+
3 Þú segir: ‚Hvaða máli skiptir það þig?*
Er ég betur settur nú en ef ég hefði syndgað?‘+
4 Ég skal svara þér
og kunningjum þínum.+
5 Horfðu til himins og sjáðu,
virtu fyrir þér skýin+ sem eru hátt fyrir ofan þig.
6 Hvernig gerirðu Guði mein ef þú syndgar?+
Hvað gerirðu honum ef þú gerir margt af þér?+
7 Hvað gefurðu honum ef þú ert réttlátur?
Hvað fær hann þá frá þér?+
8 Illska þín hefur bara áhrif á menn eins og þig
og réttlæti þitt á syni mannanna.
10 En enginn segir: ‚Hvar er Guð, minn mikli skapari,+
sá sem lætur menn syngja lofsöngva um nætur?‘+
14 Af hverju skyldi hann þá hlusta á þig þegar þú segist ekki sjá hann?+
Mál þitt er lagt fyrir hann svo að þú skalt bíða eftir honum.+
16 Job opnar munninn til einskis
og heldur langar ræður af vanþekkingu.“+