Jobsbók
40 Jehóva hélt áfram og sagði við Job:
2 „Ætti aðfinnslumaður að deila við Hinn almáttuga?+
Svari sá sem vill leiðrétta Guð.“+
3 Job svaraði þá Jehóva:
4 „Ég er ekki þess verður.+
Hverju get ég svarað þér?
Ég legg höndina á munninn.+
5 Ég hef svarað einu sinni en geri það ekki aftur,
tvisvar en segi ekki meir.“
6 Þá svaraði Jehóva Job úr storminum:+
7 „Mannaðu þig upp,
ég ætla að spyrja þig og þú skalt svara mér.+
8 Véfengir þú að ég sé réttlátur?*
Dæmir þú mig sekan svo að þú hafir rétt fyrir þér?+
10 Skrýddu þig dýrð og hátign,
klæddu þig reisn og ljóma.
11 Gefðu allri reiði þinni lausan tauminn,
líttu á alla hrokagikki og lítillækkaðu þá.
12 Líttu á alla hrokagikki og auðmýktu þá
og traðkaðu hina illu niður þar sem þeir standa.
13 Feldu þá alla í moldinni,
bittu þá á leyndum stað.
14 Þá myndi ég viðurkenna*
að hægri hönd þín gæti bjargað þér.
15 Hugsaðu um behemót* sem ég skapaði rétt eins og þig.
Hann bítur gras eins og naut.
16 Sjáðu kraftinn í lendum hans
og aflið í kviðvöðvum hans!
17 Hann sperrir halann eins og sedrustré,
sinarnar í lærum hans eru samtvinnaðar.
18 Bein hans eru koparpípur,
leggirnir eins og úr smíðajárni.
19 Hann er fremstur sinnar tegundar af* sköpunarverkum Guðs,
enginn nema skaparinn getur nálgast hann með sverði.
20 Fjöllin gefa honum fæðu,
fjöllin þar sem öll villtu dýrin leika sér.
21 Hann leggst undir lótusrunna
í skjóli við reyrinn í mýrinni.
22 Lótusrunnarnir varpa skugga á hann
og hann er umkringdur öspunum í dalnum.
24 Er hægt að fanga hann að honum ásjáandi
eða stinga krók gegnum nasir hans?