Sálmur
Eftir Davíð.
2 Rannsakaðu mig, Jehóva, og reyndu mig,
hreinsaðu hug minn* og hjarta+
3 því að ég hef tryggan kærleika þinn alltaf fyrir augum
og geng í sannleika þínum.+
6 Ég þvæ hendur mínar í sakleysi
og geng í kringum altari þitt, Jehóva,
7 til að láta þakklæti mitt hljóma+
og segja frá öllum dásemdarverkum þínum.
9 Afmáðu ekki líf mitt með syndurum,+
láttu mig ekki deyja með ofbeldismönnum,*
10 þeim sem hegða sér svívirðilega
og hafa hægri höndina fulla af mútufé.
11 En ég held fast í ráðvendni mína.
Bjargaðu mér og vertu mér góður.