Jobsbók
34 Elíhú hélt áfram og sagði:
2 „Heyrið orð mín, þið vitru menn,
hlustið á mig, þið sem vitið svo mikið.
3 Eyrað prófar orðin
eins og tungan* smakkar matinn.
4 Við skulum vega og meta hvað er rétt,
við skulum koma okkur saman um hvað er gott.
6 Myndi ég ljúga til um hvaða dóm ég ætti að fá?
Sár mín eru ólæknandi þótt ég hafi ekki brotið af mér.‘+
7 Hvaða maður er eins og Job
sem svelgir í sig móðganir eins og vatn?
8 Hann umgengst syndara
og blandar geði við vonda menn.+
9 Hann hefur sagt: ‚Maðurinn hefur engan hag af því
að reyna að þóknast Guði.‘+
10 Hlustið á mig, þið skynsömu menn:
11 Hann launar manninum eftir verkum hans+
og lætur hann taka afleiðingum gerða sinna.
13 Hver fól honum umsjón með jörðinni
og setti hann yfir allan heiminn?*
14 Ef hann beindi athygli sinni að mönnunum,
ef hann tæki aftur til sín anda þeirra og andardrátt,+
15 myndu menn deyja allir sem einn*
og mannkynið snúa aftur til moldarinnar.+
16 Ef þú hefur skilning skaltu taka vel eftir
og hlusta á það sem ég segi.
17 Ætti sá sem hatar réttlætið að stjórna
eða myndirðu fordæma réttlátan valdamann?
18 Myndirðu segja við konung: ‚Þú ert ónytjungur,‘
eða við tignarmann: ‚Þú ert illmenni‘?+
19 Sá er til sem er ekki hliðhollur höfðingjum
og tekur ekki ríka fram yfir fátæka+
því að þeir eru allir handaverk hans.+
Jafnvel valdamenn eru hrifnir burt en ekki af mannavöldum.+
21 Augu Guðs hvíla á vegum mannsins,+
hann sér hvert skref sem hann stígur.
23 Guð hefur ekki ákveðið nokkrum manni tíma
til að koma fyrir dómstól sinn.
24 Hann þarf ekki að yfirheyra valdamenn áður en hann eyðir þeim
og setur aðra í þeirra stað+
25 því að hann veit hvað þeir gera.+
Hann sviptir þá völdum að nóttu og þeim er tortímt.+
26 Hann refsar þeim fyrir illsku þeirra
í allra augsýn+
27 því að þeir eru hættir að fylgja honum+
og hafa engan áhuga á vegum hans.+
28 Þeir valda því að fátækir hrópa til Guðs,
að hann heyrir neyðaróp hinna bágstöddu.+
29 Hver getur fordæmt Guð þegar hann er þögull?
Hver getur séð hann þegar hann hylur andlitið?
Hvort sem þjóð eða maður á í hlut er útkoman sú sama:
31 Getur nokkur sagt við Guð:
‚Mér er refsað þó að ég hafi ekki gert neitt af mér.+
32 Bentu mér á það sem ég sé ekki.
Ef ég hef gert eitthvað rangt skal ég ekki endurtaka það‘?
33 Á hann að launa þér eftir þínum skilyrðum þegar þú hafnar úrskurði hans?
Þú þarft að svara því, ekki ég.
Segðu mér hvað þú veist.
34 Vitrir og skynsamir menn,
allir sem heyra til mín, munu segja við mig:
35 ‚Job veit ekki hvað hann er að tala um,+
orð hans vitna um skilningsleysi.‘
36 Látið* reyna Job til hins ýtrasta
því að hann svarar eins og vondir menn svara.