Matteus segir frá
3 Síðar meir kom Jóhannes+ skírari og boðaði+ í óbyggðum Júdeu: 2 „Iðrist, því að himnaríki er í nánd.“+ 3 Hann er sá sem Jesaja spámaður talaði um+ þegar hann sagði: „Rödd manns kallar í óbyggðunum: ‚Greiðið veg Jehóva!* Gerið brautir hans beinar.‘“+ 4 Jóhannes klæddist fötum úr úlfaldahári og var með leðurbelti um mittið.+ Hann át engisprettur og villihunang.+ 5 Fólk frá Jerúsalem, allri Júdeu og öllu Jórdansvæðinu kom til hans.+ 6 Það játaði syndir sínar opinberlega og hann skírði það* í ánni Jórdan.+
7 Þegar hann sá að margir farísear og saddúkear+ komu á skírnarstaðinn sagði hann við þá: „Þið nöðruafkvæmi,+ hver sagði ykkur að þið gætuð flúið hina komandi reiði?+ 8 Berið ávöxt sem sýnir* að þið hafið iðrast. 9 Vogið ykkur ekki að segja með sjálfum ykkur: ‚Abraham er faðir okkar.‘+ Ég segi ykkur að Guð getur myndað börn handa Abraham úr þessum steinum. 10 Öxin liggur þegar við rætur trjánna. Þau tré sem bera ekki góðan ávöxt verða höggvin og þeim kastað í eldinn.+ 11 Ég skíri ykkur með vatni vegna þess að þið iðrist+ en sá sem kemur á eftir mér er máttugri en ég, og ég er ekki þess verðugur að taka sandalana af fótum hans.+ Hann mun skíra ykkur með heilögum anda+ og eldi.+ 12 Hann er með varpskófluna* í hendi og mun gerhreinsa þreskivöllinn. Hann safnar hveitinu í hlöðu en brennir hismið í óslökkvandi eldi.“+
13 Jesús kom nú frá Galíleu til Jórdanar til að skírast hjá Jóhannesi+ 14 en Jóhannes mótmælti og sagði: „Það er ég sem þarf að skírast hjá þér. Hvers vegna kemur þú þá til mín?“ 15 Jesús svaraði honum: „Gerðu það nú samt, því að þannig fullnægjum við öllu réttlæti.“ Þá hætti hann að mótmæla. 16 Um leið og Jesús hafði verið skírður kom hann upp úr vatninu, himnarnir opnuðust+ og Jóhannes sá anda Guðs koma niður yfir hann eins og dúfu.+ 17 Einnig heyrðist rödd af himni+ sem sagði: „Þetta er sonur minn+ sem ég elska og hef velþóknun á.“+