Síðari Kroníkubók
12 Fljótlega eftir að Rehabeam var orðinn fastur í sessi sem konungur+ og mjög voldugur yfirgaf hann lög Jehóva+ og allur Ísrael með honum. 2 Á fimmta stjórnarári Rehabeams konungs fór Sísak+ Egyptalandskonungur í herferð gegn Jerúsalem af því að Ísraelsmenn höfðu verið Jehóva ótrúir. 3 Hann hafði með sér 1.200 stríðsvagna, 60.000 riddara og ótal hermenn frá Egyptalandi: Líbíumenn, Súkíta og Eþíópíumenn.+ 4 Hann hertók víggirtu borgirnar í Júda og komst að lokum til Jerúsalem.
5 Semaja+ spámaður kom til Rehabeams og höfðingja Júda sem höfðu safnast saman í Jerúsalem af ótta við Sísak. Hann sagði við þá: „Jehóva segir: ‚Þið hafið yfirgefið mig. Þess vegna yfirgef ég ykkur líka+ og gef ykkur í hendur Sísaks.‘“ 6 Höfðingjar Ísraels og konungurinn auðmýktu sig+ þá og sögðu: „Jehóva er réttlátur.“ 7 Þegar Jehóva sá að þeir auðmýktu sig kom orð Jehóva til Semaja: „Þar sem þeir hafa auðmýkt sig ætla ég ekki að tortíma þeim.+ Áður en langt um líður mun ég bjarga þeim. Ég mun ekki úthella reiði minni yfir þá og ekki láta Sísak eyða Jerúsalem. 8 En þeir verða þjónar hans svo að þeir sjái muninn á að þjóna mér og konungum annarra landa.“
9 Sísak Egyptalandskonungur hélt nú í herferð gegn Jerúsalem. Hann tók dýrgripina úr húsi Jehóva+ og konungshöllinni. Hann tók allt saman, þar á meðal gullskildina sem Salómon hafði gert.+ 10 Rehabeam konungur gerði koparskildi í þeirra stað og fól þá foringjum lífvarðanna* til umsjónar en þeir gættu dyra konungshallarinnar. 11 Í hvert skipti sem konungur gekk í hús Jehóva fóru verðirnir með honum og báru skildina en skiluðu þeim síðan aftur í lífvarðaherbergið. 12 Þar sem konungur auðmýkti sig sefaðist reiði Jehóva+ og hann tortímdi þeim ekki með öllu.+ Auk þess var eitt og annað gott í Júda.+
13 Rehabeam konungur styrkti völd sín í Jerúsalem og ríkti áfram sem konungur. Rehabeam var 41 árs þegar hann varð konungur og hann ríkti í 17 ár í Jerúsalem, borginni sem Jehóva hafði valið úr öllum ættkvíslum Ísraels til að setja nafn sitt á. Móðir hans hét Naama og var frá Ammón.+ 14 En hann gerði það sem var illt því að hann var ekki ákveðinn í að leita Jehóva.+
15 Saga Rehabeams frá upphafi til enda er skráð í frásögn Semaja+ spámanns og Iddós+ sjáanda, í ættartölunum. Rehabeam og Jeróbóam áttu stöðugt í stríði hvor við annan.+ 16 Rehabeam var lagður til hvíldar hjá forfeðrum sínum og jarðaður í Davíðsborg.+ Abía+ sonur hans varð konungur eftir hann.