Sálmur
Um Salómon.
72 Guð, feldu konunginum dóma þína
og syni konungs réttlæti þitt+
2 svo að hann flytji mál þjóðar þinnar í réttlæti
og mál þinna bágstöddu með réttvísi.+
3 Fjöllin færi þjóðinni frið
og hæðirnar réttlæti.
5 Menn munu óttast þig eins lengi og sólin varir
og eins lengi og tunglið er til,
kynslóð eftir kynslóð.+
7 Á hans dögum mun hinn réttláti blómstra+
og friðurinn verður allsráðandi+ þar til tunglið er ekki lengur til.
11 Allir konungar skulu falla fram fyrir honum
og allar þjóðir þjóna honum
12 því að hann bjargar hinum fátæka sem hrópar á hjálp,
hinum bágstadda og þeim sem enginn hjálpar.
13 Hann mun finna til með bágstöddum og snauðum
og bjarga lífi fátækra.
14 Hann frelsar* þá undan kúgun og ofbeldi
því að blóð þeirra er dýrmætt í augum hans.
15 Megi hann lifa og hljóta gull frá Saba.+
Menn biðji stöðugt fyrir honum
og blessi hann allan liðlangan daginn.
Uppskera hans verður væn eins og Líbanonsskógur+
og í borgunum blómstrar fólk eins og gróður jarðar.+
Amen og amen.
20 Hér með lýkur bænum Davíðs Ísaísonar.+