Opinberun Jóhannesar
10 Ég sá annan sterkan engil stíga niður af himni. Hann var klæddur* skýi og regnbogi var yfir höfði hans. Andlit hans var eins og sólin,+ fótleggirnir* eins og eldstólpar 2 og hann hélt á lítilli bókrollu sem var opin. Hann steig hægri fæti á hafið en vinstri fæti á jörðina 3 og hrópaði hárri röddu eins og þegar ljón öskrar.+ Og þegar hann hrópaði heyrði ég raddir þrumanna+ sjö.
4 Þegar þrumurnar sjö töluðu ætlaði ég að skrifa en þá heyrði ég rödd af himni+ sem sagði: „Innsiglaðu það sem þrumurnar sjö sögðu og skrifaðu það ekki niður.“ 5 Engillinn sem ég sá standa á hafinu og jörðinni lyfti hægri hendinni til himins 6 og sór við þann sem lifir um alla eilífð,+ hann sem skapaði himininn og það sem í honum er, jörðina og það sem á henni er og hafið og það sem í því er.+ Hann sagði: „Biðin er á enda. 7 Á þeim dögum þegar sjöundi engillinn+ er tilbúinn að blása í lúðurinn+ verður heilagur leyndardómur+ Guðs að veruleika, fagnaðarboðskapurinn sem hann boðaði þjónum sínum, spámönnunum.“+
8 Röddin sem ég heyrði af himni+ talaði aftur við mig og sagði: „Farðu og taktu opnu bókrolluna úr hendi engilsins sem stendur á hafinu og jörðinni.“+ 9 Ég fór til engilsins og bað hann um að gefa mér litlu bókrolluna. Hann svaraði: „Taktu hana og borðaðu hana.+ Hún verður beisk í maga þínum en í munni þínum verður hún sæt eins og hunang.“ 10 Ég tók bókrolluna úr hendi engilsins og borðaði hana,+ og í munni mínum var hún sæt eins og hunang+ en þegar ég hafði kyngt henni varð hún beisk í maga mínum. 11 Þá var sagt við mig: „Þú átt að spá aftur um kynþætti, þjóðir, tungur* og marga konunga.“