Esekíel
11 Andi lyfti mér upp og fór með mig að austurhliðinu að húsi Jehóva, hliðinu sem snýr í austur.+ Við innganginn að hliðinu sá ég 25 menn, höfðingja fólksins, og á meðal þeirra voru Jaasanja Assúrsson og Pelatja Benajason.+ 2 Guð sagði við mig: „Mannssonur, þetta eru mennirnir sem hafa illt í hyggju og veita skaðleg ráð í þessari borg.* 3 Þeir segja: ‚Er þetta ekki rétti tíminn til að byggja hús?+ Borgin* er potturinn*+ og við erum kjötið.‘
4 Þess vegna skaltu spá gegn þeim. Spáðu, mannssonur.“+
5 Þá kom andi Jehóva yfir mig+ og hann sagði við mig: „Segðu: ‚Þetta segir Jehóva: „Þið hafið rétt fyrir ykkur, Ísraelsmenn, og ég veit hvað þið hugsið. 6 Þið eigið sök á dauða margra í þessari borg og þið hafið fyllt göturnar líkum.“‘“+ 7 „Þess vegna segir alvaldur Drottinn Jehóva: ‚Líkin sem þið hafið stráð um borgina eru kjötið og borgin er potturinn.+ En þið verðið fluttir burt úr henni.‘“
8 „‚Þið óttist sverð+ og ég læt sverð koma yfir ykkur,‘ segir alvaldur Drottinn Jehóva. 9 ‚Ég flyt ykkur út úr borginni, sel ykkur útlendingum í hendur og fullnægi dómi yfir ykkur.+ 10 Þið munuð falla fyrir sverði.+ Ég dæmi ykkur við landamæri Ísraels+ og þið munuð komast að raun um að ég er Jehóva.+ 11 Borgin verður ekki pottur fyrir ykkur og þið verðið ekki kjötið í honum. Ég dæmi ykkur við landamæri Ísraels 12 og þið komist að raun um að ég er Jehóva því að þið fylgduð ekki ákvæðum mínum og hlýdduð ekki lögum mínum+ heldur lifðuð eftir lögum þjóðanna í kring.‘“+
13 Meðan ég spáði dó Pelatja Benajason. Þá féll ég á grúfu og hrópaði: „Æ, alvaldur Drottinn Jehóva! Ætlarðu að útrýma þeim sem eftir eru af Ísrael?“+
14 Orð Jehóva kom aftur til mín: 15 „Mannssonur, íbúar Jerúsalem hafa sagt við bræður þína, þá sem hafa rétt til að leysa til sín landareign þína, og við alla aðra Ísraelsmenn: ‚Haldið ykkur fjarri Jehóva. Við eigum þetta land, við höfum fengið það til eignar.‘ 16 Þess vegna skaltu segja: ‚Alvaldur Drottinn Jehóva segir: „Þótt ég hafi flutt þá til þjóða langt í burtu og dreift þeim um löndin+ verð ég þeim helgidómur um skamma hríð í löndunum þar sem þeir eru.“‘+
17 Segðu því: ‚Alvaldur Drottinn Jehóva segir: „Ég ætla líka að sækja ykkur til þjóðanna og safna ykkur saman frá löndunum sem ykkur var tvístrað til, og ég ætla að gefa ykkur Ísraelsland.+ 18 Þeir snúa aftur þangað og fjarlægja þaðan allan viðbjóð og alla þá viðurstyggð sem á sér stað í landinu.+ 19 Og ég gef þeim óskipt hjarta+ og legg þeim nýjan anda í brjóst.+ Ég fjarlægi steinhjartað úr þeim+ og gef þeim hjarta úr holdi*+ 20 svo að þeir fylgi ákvæðum mínum og haldi lög mín og hlýði þeim. Þá verða þeir fólk mitt og ég verð Guð þeirra.“‘
21 ‚„En þeir sem í hjarta sér halda sig við andstyggileg skurðgoð sín og viðurstyggileg verk þurfa að taka afleiðingum gerða sinna,“ segir alvaldur Drottinn Jehóva.‘“
22 Kerúbarnir lyftu nú vængjunum með hjólin sér við hlið+ og dýrð Guðs Ísraels var yfir þeim.+ 23 Dýrð Jehóva+ hóf sig þá upp frá borginni og staðnæmdist yfir fjallinu austan við hana.+ 24 Andi lyfti mér síðan upp – í sýn sem andi Guðs veitti mér – og flutti mig til útlaganna í Kaldeu. Þá hvarf sýnin sem ég hafði séð. 25 Ég sagði útlögunum frá öllu sem Jehóva hafði sýnt mér.