Þriðja Mósebók
15 Jehóva sagði nú við Móse og Aron: 2 „Segið Ísraelsmönnum: ‚Ef maður er með útferð frá kynfærum* er hann óhreinn.+ 3 Hvort sem útferðin er viðvarandi eða stíflar kynfærin er hann óhreinn.
4 Rúm sem maður með útferð leggst í verður óhreint og allt sem hann sest á verður óhreint. 5 Sá sem snertir rúm hans á að þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds.+ 6 Sá sem sest á eitthvað sem maður með útferð hefur setið á skal þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 7 Sá sem snertir mann með útferð á að þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 8 Ef maður með útferð hrækir á hreinan mann skal sá þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 9 Hnakkur sem maður með útferð situr í verður óhreinn. 10 Sá sem snertir eitthvað sem maðurinn hefur setið á verður óhreinn til kvölds og sá sem tekur það upp skal þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 11 Ef sá sem er með útferð+ hefur ekki þvegið sér um hendurnar í vatni og snertir einhvern á sá að þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 12 Ef maður með útferð snertir leirker á að brjóta það en ílát úr tré skal þvegið í vatni.+
13 Þegar útferðin, sem gerði manninn óhreinan, stöðvast á hann að láta sjö daga líða og síðan skal hann þvo föt sín og baða sig í fersku vatni. Eftir það er hann hreinn.+ 14 Á áttunda degi á hann að taka tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur,+ ganga fram fyrir Jehóva við inngang samfundatjaldsins og færa prestinum þær. 15 Presturinn á að fórna þeim, annarri í syndafórn og hinni í brennifórn, og friðþægja fyrir manninn frammi fyrir Jehóva vegna útferðarinnar.
16 Ef maður fær sáðlát á hann að baða allan líkama sinn í vatni og vera óhreinn til kvölds.+ 17 Ef sáðvökvi kemur á flík eða eitthvað úr leðri á hann að þvo það í vatni og það verður óhreint til kvölds.
18 Þegar maður hefur samfarir við konu og fær sáðlát eiga þau að baða sig í vatni og vera óhrein til kvölds.+
19 Þegar kona er á blæðingum skal hún vera óhrein í sjö daga.+ Sá sem snertir hana verður óhreinn til kvölds.+ 20 Allt sem hún leggst á meðan hún er óhrein af blæðingum verður óhreint og allt sem hún sest á verður óhreint.+ 21 Sá sem snertir rúm hennar á að þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 22 Sá sem snertir eitthvað sem hún hefur setið á skal þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds. 23 Ef einhver snertir rúm hennar eða eitthvað annað sem hún hefur setið á verður hann óhreinn til kvölds.+ 24 Og ef maður hefur samfarir við hana og tíðablóð hennar kemur á hann+ verður hann óhreinn í sjö daga og hvert rúm sem hann leggst í verður óhreint.
25 Ef kona er á blæðingum í marga daga+ á öðrum tíma en hún er venjulega á blæðingum+ eða ef blæðingarnar standa lengur en venjulegar blæðingar er hún óhrein alla þá daga sem henni blæðir. Hún er óhrein eins og þegar hún er á tíðablæðingum. 26 Rúm sem hún liggur í meðan henni blæðir verður óhreint+ og allt sem hún sest á verður óhreint eins og þegar hún er á tíðablæðingum. 27 Sá sem snertir eitthvað af þessu verður óhreinn og á að þvo föt sín, baða sig í vatni og vera óhreinn til kvölds.+
28 En þegar blæðingarnar stöðvast á hún að láta sjö daga líða og eftir það er hún hrein.+ 29 Á áttunda degi skal hún taka tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur+ og færa þær prestinum við inngang samfundatjaldsins.+ 30 Presturinn á að færa aðra í syndafórn og hina í brennifórn og friðþægja fyrir konuna frammi fyrir Jehóva vegna óhreinna blæðinga hennar.+
31 Þannig skuluð þið vernda Ísraelsmenn gegn* óhreinleika sínum svo að þeir deyi ekki fyrir að óhreinka tjaldbúð mína sem er meðal þeirra.+
32 Þetta eru lögin um mann sem er með útferð, mann sem er óhreinn vegna sáðláta,+ 33 konu sem er óhrein vegna blæðinga,+ mann eða konu sem er með útferð eða blæðingar+ og mann sem hefur samfarir við óhreina konu.‘“