Amos
3 „Heyrið það sem Jehóva hefur sagt um ykkur, Ísraelsmenn, um alla þá ætt sem ég leiddi út úr Egyptalandi:
2 ‚Af öllum ættum jarðar hef ég aðeins valið* ykkur.+
Þess vegna dreg ég ykkur til ábyrgðar fyrir öll afbrot ykkar.+
3 Verða tveir menn samferða án þess að hafa mælt sér mót?
4 Öskrar ljón í skóginum ef það hefur enga bráð?
Urrar ungljón í bæli sínu ef það hefur ekkert veitt?
5 Festist fugl í gildru á jörðinni nema snara sé lögð fyrir hann?*
Hrekkur gildra upp af jörðinni ef ekkert kemur í hana?
6 Ef blásið er í horn í borginni, verða íbúarnir þá ekki hræddir?
Ef hörmungar verða í borginni, stendur Jehóva ekki á bak við þær?
7 Alvaldur Drottinn Jehóva gerir ekkert
án þess að hafa opinberað þjónum sínum, spámönnunum, áform sín.*+
8 Ljónið hefur öskrað!+ Hver verður ekki óttasleginn?
Alvaldur Drottinn Jehóva hefur talað! Hver spáir ekki?‘+
9 ‚Hrópið ofan af virkisturnum Asdód
og virkisturnunum í Egyptalandi
og segið: „Safnist saman á fjöllum Samaríu.+
Sjáið glundroðann í henni
og svikin sem viðgangast þar.+
10 Fólkið kann ekki að gera það sem er rétt,“ segir Jehóva.
„Það fyllir virkisturna sína með ofbeldi og eyðileggingu.“‘
11 Þess vegna segir alvaldur Drottinn Jehóva:
‚Óvinur mun umkringja landið.+
Hann sviptir þig öllum styrk
og virkisturnar þínir verða rændir.‘+
12 Þetta segir Jehóva:
‚Eins og fjárhirði tekst að bjarga tveim leggjum eða bút af eyra úr gini ljónsins,
þannig bjargast Ísraelsmenn,
þeir sem sitja nú í Samaríu á dýrindis rúmum og fínustu legubekkjum.‘*+
13 ‚Hlustið og gerið ætt Jakobs viðvart,‘* segir alvaldur Drottinn Jehóva, Guð hersveitanna,
14 ‚því að daginn sem ég dreg Ísrael til ábyrgðar fyrir alla glæpi sína*+
læt ég ölturun í Betel líka kenna á því.+
Altarishornin verða höggvin af og falla til jarðar.+
15 Ég ríf niður vetrarhúsið og sumarhúsið.‘