Fyrri Samúelsbók
26 Dag einn komu menn frá Síf+ til Sáls í Gíbeu+ og sögðu: „Davíð er í felum á Hakílahæð á móts við Jesímon.“*+ 2 Sál fór þá til óbyggða Síf til að leita að Davíð og tók með sér 3.000 menn sem hann hafði valið úr Ísrael.+ 3 Sál setti upp búðir á Hakílahæð á móts við Jesímon, nálægt veginum, en Davíð hélt til í óbyggðunum. Davíð frétti að Sál hefði elt hann inn í óbyggðirnar 4 og sendi þá njósnara til að kanna hvort það fengi staðist. 5 Síðan lagði Davíð af stað og fór þangað sem Sál var með búðir sínar. Þá sá hann hvar Sál og Abner+ Nersson hershöfðingi hans sváfu. Sál svaf í miðjum búðunum en hermennirnir lágu í tjöldum sínum í kringum hann. 6 Davíð sagði nú við Ahímelek Hetíta+ og Abísaí+ Serújuson+ bróður Jóabs: „Hver vill koma með mér niður í herbúðirnar til Sáls?“ „Ég skal koma með þér,“ svaraði Abísaí. 7 Davíð og Abísaí gengu til herliðsins í skjóli nætur og fundu Sál þar sem hann lá sofandi í miðjum búðunum. Spjót hans var rekið í jörðina við höfðalagið og Abner og hermennirnir lágu í kringum hann.
8 Abísaí sagði við Davíð: „Í dag hefur Guð gefið óvin þinn í hendur þínar.+ Ég skal taka spjótið og negla hann við jörðina í einni atrennu, meira þarf ekki.“ 9 En Davíð svaraði Abísaí: „Gerðu honum ekki mein. Hver getur lagt hendur á smurðan konung Jehóva+ og sloppið við refsingu?“+ 10 Davíð hélt áfram: „Svo sannarlega sem Jehóva lifir mun Jehóva sjálfur greiða honum banahögg+ eða hann deyr af náttúrulegum orsökum+ eða fellur í bardaga.+ 11 Það kemur ekki til greina að ég leggi hendur á smurðan konung Jehóva! Það væri rangt í augum Jehóva.+ Taktu spjótið þarna við höfðalagið og vatnskrukkuna og komum okkur héðan.“ 12 Davíð tók síðan spjótið og vatnskrukkuna við höfðalag Sáls og þeir fóru burt. Enginn sá þá+ né varð var við þá og enginn vaknaði. Þeir voru allir sofandi því að Jehóva hafði látið þá falla í djúpan svefn. 13 Davíð fór síðan yfir um gilið og tók sér stöðu á fjallstindi langt í burtu, í öruggri fjarlægð frá Sál.
14 Davíð hrópaði til herliðsins og Abners+ Nerssonar: „Abner, heyrirðu í mér?“ Abner svaraði: „Hver er það sem hrópar á konunginn?“ 15 Davíð sagði þá við Abner: „Ertu ekki karlmenni? Enginn í Ísrael stendur þér jafnfætis. Hvers vegna gættirðu þá ekki herra þíns, konungsins? Einn hermannanna kom inn í búðirnar til að drepa herra þinn, konunginn.+ 16 Þú hefur brugðist skyldu þinni. Svo sannarlega sem Jehóva lifir áttu skilið að deyja því að þú gættir ekki herra þíns, hans sem er smurður konungur Jehóva.+ Líttu í kringum þig. Hvar er spjót konungsins og vatnskrukkan+ sem voru við höfðalag hans?“
17 Sál þekkti rödd Davíðs og spurði: „Er þetta röddin þín, Davíð sonur minn?“+ „Já, herra minn og konungur,“ svaraði Davíð 18 og spurði: „Hvers vegna eltirðu mig, herra minn?+ Hvað hef ég gert og hvaða glæp hef ég framið?+ 19 Herra minn og konungur, hlustaðu á þjón þinn. Ef Jehóva hefur æst þig upp á móti mér skal ég færa honum kornfórn.* En ef menn hafa gert það,+ þá séu þeir bölvaðir frammi fyrir Jehóva því að þeir hafa hrakið mig burt frá arfleifð Jehóva+ og segja í raun: ‚Farðu og þjónaðu öðrum guðum!‘ 20 Láttu blóð mitt ekki renna til jarðar fjarri augliti Jehóva. Konungur Ísraels er í leit að einni fló+ eins og hann væri að eltast við akurhænu í fjöllunum.“
21 Þá sagði Sál: „Ég hef syndgað.+ Komdu aftur, Davíð sonur minn. Ég ætla aldrei að gera þér mein framar því að þú sýndir í dag að líf mitt er þér dýrmætt.+ Ég hef hegðað mér heimskulega og gert hræðileg mistök.“ 22 Davíð svaraði: „Hér er spjót konungs. Sendu einn af ungu mönnunum hingað yfir til að sækja það. 23 Jehóva launar hverjum og einum réttlæti hans+ og trúfesti. Í dag gaf Jehóva þig í hendur mínar en ég vildi ekki leggja hendur á smurðan konung Jehóva.+ 24 Eins og líf þitt var mér dýrmætt í dag bið ég þess að líf mitt sé dýrmætt í augum Jehóva og hann bjargi mér úr öllum erfiðleikum.“+ 25 Sál svaraði: „Guð blessi þig, Davíð sonur minn. Þú munt standa þig vel og afreka margt.“+ Síðan hélt Davíð leiðar sinnar en Sál fór aftur heim.+