Sálmur
Til tónlistarstjórans. Eftir syni Kóra.+ Söngljóð.
85 Jehóva, þú hefur sýnt landi þínu góðvild.+
Þú leiddir aftur heim börn Jakobs sem voru í ánauð.+
2 Þú fyrirgafst misgerðir fólks þíns,
breiddir yfir allar syndir þess.+ (Sela)
3 Þú hélst aftur af bræði þinni,
hefur látið af brennandi reiðinni.+
5 Verður þú okkur reiður að eilífu?+
Mun bræði þín vara kynslóð eftir kynslóð?
6 Viltu ekki lífga okkur við
svo að fólk þitt geti glaðst yfir þér?+
7 Sýndu okkur tryggan kærleika, Jehóva,+
og veittu okkur frelsun.
8 Ég hlusta á það sem Jehóva, hinn sanni Guð, segir
því að hann boðar fólki sínu frið,+ sínum trúföstu.
En láttu þá ekki verða örugga með sig.+
9 Hann er tilbúinn að bjarga þeim sem óttast hann+
til að dýrð hans megi búa í landi okkar.
10 Tryggur kærleikur og trúfesti mætast,
réttlæti og friður kyssast.+
11 Trúfesti sprettur upp úr jörðinni
og réttlæti horfir niður af himnum.+
13 Réttlætið gengur á undan honum+
og ryður stíg fyrir fætur hans.