Sálmur
Til tónlistarstjórans. Við „Liljurnar“. Eftir Davíð.
69 Bjargaðu mér, Guð, því að vötnin eru við það að drekkja mér.+
2 Ég er sokkinn í djúpan forarpytt og næ engri fótfestu.+
Ég er kominn í djúpt vatn
og sterkur straumurinn hefur borið mig með sér.+
Þeir sem vilja drepa mig,
undirförulir óvinir mínir,* eru margir.
Ég neyddist til að skila því sem ég hafði ekki stolið.
5 Guð, þú veist hve heimskulega ég hef farið að ráði mínu
og synd mín er þér ekki hulin.
6 Láttu mig ekki leiða skömm yfir þá sem vona á þig,
alvaldur Drottinn, Jehóva hersveitanna.
Láttu mig ekki leiða smán yfir þá sem leita þín,
þú Guð Ísraels.
8 Ég er orðinn ókunnugur bræðrum mínum
og framandi sonum móður minnar.+
10 Ég auðmýkti mig með föstu*
en var hafður að háði fyrir það.
11 Ég klæddist hærusekk
en þeir gerðu gys að mér.*
12 Ég er umræðuefni þeirra sem sitja í borgarhliðinu
og drykkjurútar syngja níðvísur um mig.
13 En megi bæn mín berast þér, Jehóva,
á tíma velvildar þinnar.+
Svaraðu mér, Guð, þú sem ert ríkur að tryggum kærleika,
því að hjálp þín er örugg.+
14 Bjargaðu mér upp úr leðjunni
svo að ég sökkvi ekki.
Bjargaðu mér frá þeim sem hata mig
og úr djúpinu.+
16 Svaraðu mér, Jehóva, því að kærleikur* þinn er góður.+
Snúðu þér að mér+ því að miskunn þín er mikil.
18 Vertu nálægt mér og bjargaðu mér,
frelsaðu* mig frá óvinum mínum.
19 Þú veist hvernig þeir hæðast að mér, gera lítið úr mér og niðurlægja mig.+
Þú sérð alla óvini mína.
20 Háðsglósur þeirra hafa kramið hjarta mitt og sárið er ólæknandi.*
22 Borðhald þeirra verði þeim gildra
og velmegun þeirra snara.+
25 Búðir þeirra leggist í eyði,
enginn skal búa í tjöldum þeirra+
26 því að þeir ofsækja þann sem þú hefur slegið
og staglast á þjáningum þeirra sem þú hefur sært.
27 Bættu sekt við sekt þeirra
og láttu þá ekki eiga hlut í réttlæti þínu.
29 En ég er þjakaður og þjáður.+
Bjargaðu mér, Guð, og verndaðu mig.
30 Ég vil lofa nafn Guðs í söng,
heiðra hann með þakkargjörð.
31 Jehóva mun líka það betur en naut,
ungnaut með horn og klaufir.+
32 Hinir auðmjúku sjá það og gleðjast.
Þið sem leitið Guðs, megi hjörtu ykkar lifna við
33 því að Jehóva hlustar á hina fátæku+
og fyrirlítur ekki ánauðugt fólk sitt.+
34 Himinn og jörð skulu lofa hann,+
höfin og allt sem í þeim hrærist,
35 því að Guð frelsar Síon+
og endurreisir borgir Júda.
Fólk hans mun búa þar og eignast landið.