Jobsbók
31 Ég hef gert sáttmála við augu mín.+
Hvernig gæti ég þá sýnt ungri konu óviðeigandi áhuga?+
2 Hvers gæti ég þá vænst frá Guði á himnum,
hvaða arf fengi ég frá hinum almáttuga í hæðum?
3 Bíður ekki ógæfan syndarans
og hörmungar þeirra sem gera illt?+
4 Sér ekki Guð allt sem ég geri+
og telur hann ekki öll skref mín?
5 Hef ég nokkurn tíma gengið á vegum lyginnar?*
Hefur fótur minn flýtt sér til svika?+
7 Ef fætur mínir víkja út af veginum,+
hjarta mitt fylgir augunum+
eða hendur mínar óhreinkast af synd
8 þá borði annar maður það sem ég sái+
og það sem ég gróðurset verði upprætt.*
9 Hafi kona tælt hjarta mitt+
og hafi ég legið í leyni+ við dyr náunga míns
10 þá mali kona mín fyrir annan mann
og aðrir menn hafi mök við hana+
11 því að það væri skammarlegt athæfi,
brot sem dómurum bæri að refsa fyrir.+
13 Hafi ég neitað þjónum mínum eða þjónustustúlkum um réttláta meðferð
þegar þau höfðu undan einhverju að kvarta,*
Hvað get ég sagt þegar hann krefur mig svars?+
15 Sá sem skapaði mig í móðurkviði, skapaði hann þau ekki líka?+
Var það ekki sá hinn sami sem mótaði okkur áður en við fæddumst?*+
17 Hef ég borðað matinn minn einn
án þess að deila honum með munaðarlausum?+
18 (Nei, frá unga aldri hef ég verið eins og faðir munaðarleysingjans*
19 Hef ég séð nokkurn krókna úr kulda
eða neitað fátækum manni um ábreiðu?+
21 Hef ég steytt hnefann framan í munaðarleysingjann+
23 Ég óttaðist refsingu Guðs,
ég stæðist aldrei frammi fyrir hátign hans.
24 Hef ég sett traust mitt á gull
eða sagt við skíragullið: ‚Þú ert trygging mín‘?+
eða tunglið líða áfram í ljóma sínum,+
27 lét ég þá hjartað tæla mig í leynum
til að tilbiðja þau og senda þeim fingurkoss?+
28 Það hefði verið brot sem dómurum bar að refsa fyrir
því að þá hefði ég afneitað hinum sanna Guði í hæðum.
31 Heimilismenn mínir hafa sagt:
‚Hefur nokkur farið svangur frá borði hans?‘+
33 Hef ég nokkurn tíma reynt að fela mistök mín eins og aðrir+
með því að leyna þeim í skikkjufellingu minni?
34 Hef ég hræðst viðbrögð fjöldans
eða óttast að aðrar fjölskyldur fyrirlitu mig
þannig að ég þagnaði og þyrði ekki að fara út?
35 Bara að einhver hlustaði á mig!+
Ég myndi skrifa undir það sem ég hef sagt.*
Hinn almáttugi svari mér!+
Ég vildi að andstæðingur minn hefði skrifað niður ákærur sínar.
36 Þá myndi ég leggja þær á öxlina
og bera þær á höfðinu eins og kórónu.
37 Ég myndi gera honum grein fyrir hverju skrefi sem ég stíg,
ég myndi ganga öruggur fyrir hann, eins og höfðingi.
38 Ef akur minn hrópaði gegn mér
og plógförin grétu öll saman,
39 ef ég hef borðað ávöxt hans án endurgjalds+
eða valdið eigendum hans örvæntingu+
40 þá vaxi þyrnar í stað hveitis á akri mínum
og illa lyktandi illgresi í stað byggs.“
Hér lýkur orðum Jobs.