Jósúabók
15 Landið sem kom í hlut+ ættkvíslar Júda,* allra ætta hennar, náði að landamærum Edóms,+ það er óbyggðum Sin, og suðurenda Negeb. 2 Suðurlandamærin lágu frá enda Saltasjávar,*+ frá víkinni sem snýr til suðurs. 3 Þaðan lágu þau suður að Sporðdrekaskarði,*+ fram hjá Sin, síðan upp eftir suður fyrir Kades Barnea,+ til Hesrón, upp til Addar og í boga í átt að Karka. 4 Þaðan lágu þau til Asmón+ og áfram að Egyptalandsá*+ og síðan til Hafsins.* Þetta voru suðurlandamærin.
5 Austurlandamærin voru Saltisjór* að ósum Jórdanar og landamærin norðan megin lágu frá víkinni við ósa Jórdanar.+ 6 Þaðan lágu þau upp til Bet Hogla+ og norður fyrir Bet Araba+ upp að steini Bóhans+ Rúbenssonar. 7 Landamærin lágu síðan upp til Debír við Akordal*+ og sveigðu í norðurátt að Gilgal,+ sem er á móts við Adúmmímbrekku sunnan við flóðdalinn, og áfram að Semeslind+ og síðan að Rógellind.+ 8 Landamærin lágu þaðan upp að Hinnomssonardal+ að brekkunni sunnan megin við borg Jebúsíta,+ það er Jerúsalem,+ og upp á tind fjallsins vestur af Hinnomsdal við norðurenda Refaímdals.* 9 Landamærin voru dregin frá fjallstindinum að Neftóalind,+ áfram að borgunum á Efronfjalli og síðan að Baala, það er Kirjat Jearím.+ 10 Frá Baala lágu landamærin í boga vestur að Seírfjalli og áfram að norðurhlíð Jearímfjalls, það er Kesalon, og síðan niður að Bet Semes+ og yfir til Timna.+ 11 Þá lágu landamærin að norðuröxl Ekron+ og voru síðan dregin að Síkrón, áfram að Baalafjalli, síðan til Jabneel og að lokum til sjávar.
12 Vesturlandamærin lágu meðfram strönd Hafsins mikla.*+ Þetta voru landamæri landsins sem ættir Júda fengu.
13 Jósúa gaf Kaleb+ Jefúnnesyni eignarhlut meðal afkomenda Júda í samræmi við fyrirmæli Jehóva, nánar tiltekið Kirjat Arba (Arba var faðir Anaks), það er að segja Hebron.+ 14 Kaleb hrakti þrjá syni Anaks+ burt þaðan, þá Sesaí, Ahíman og Talmaí,+ afkomendur Anaks. 15 Síðan hélt hann þaðan gegn íbúum Debír.+ (Debír hét áður Kirjat Sefer.) 16 Kaleb sagði: „Þeim manni sem ræðst á Kirjat Sefer og tekur hana gef ég Aksa dóttur mína að eiginkonu.“ 17 Otníel,+ sonur Kenasar+ bróður Kalebs, náði borginni. Kaleb gaf honum því Aksa+ dóttur sína að eiginkonu. 18 Þegar hún var á heimleið hvatti hún hann til að biðja föður sinn um landareign. Síðan steig hún af baki asna sínum.* Kaleb spurði hana þá: „Hvað viltu?“+ 19 Hún svaraði: „Viltu gefa mér gjöf til tákns um blessun þína? Þú hefur gefið mér landskika í suðri* en gefðu mér líka Gullót Maím.“* Hann gaf henni þá Efri-Gullót og Neðri-Gullót.
20 Þetta var erfðalandið sem ættir Júda fengu.
21 Borgirnar í útjaðri landsvæðis Júda sem lágu að landamærum Edóms+ í suðri voru: Kabseel, Eder, Jagúr, 22 Kína, Dímóna, Adada, 23 Kedes, Hasór, Jítnan, 24 Síf, Telem, Bealót, 25 Hasór Hadatta og Keríjót Hesrón, það er Hasór, 26 Amam, Sema, Mólada,+ 27 Hasar Gadda, Hesmon, Bet Pelet,+ 28 Hasar Súal, Beerseba,+ Bisjótja, 29 Baala, Ijím, Esem, 30 Eltólað, Kesíl, Horma,+ 31 Siklag,+ Madmanna, Sansanna, 32 Lebaót, Silhím, Aín og Rimmon+ – alls 29 borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
33 Í Sefela+ voru: Estaól, Sórea,+ Asna, 34 Sanóa, En Ganním, Tappúa, Enam, 35 Jarmút, Adúllam,+ Sókó, Aseka,+ 36 Saaraím,+ Adítaím og Gedera ásamt Gederótaím* – 14 borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
37 Senan, Hadasa, Migdal Gað, 38 Dílean, Mispe, Jokteel, 39 Lakís,+ Boskat, Eglon, 40 Kabbón, Lahmas, Kitlís, 41 Gederót, Bet Dagón, Naama og Makkeda+ – 16 borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
42 Líbna,+ Eter, Asan,+ 43 Jifta, Asna, Nesíb, 44 Kegíla, Aksíb og Maresa – níu borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
45 Ekron ásamt tilheyrandi bæjum og þorpum,* 46 og allir bæir frá Ekron í vesturátt í grennd við Asdód ásamt tilheyrandi þorpum.
47 Asdód+ ásamt tilheyrandi bæjum og þorpum,* Gasa+ ásamt tilheyrandi bæjum og þorpum niður að Egyptalandsá,* Hafinu mikla* og strandlengjunni.+
48 Og í fjalllendinu: Samír, Jattír,+ Sókó, 49 Danna, Kirjat Sanna, það er Debír, 50 Anab, Estemó,+ Aním, 51 Gósen,+ Hólon og Gíló+ – 11 borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
52 Arab, Dúma, Esean, 53 Janúm, Bet Tappúa, Afeka, 54 Húmta, Kirjat Arba, það er Hebron,+ og Síor – níu borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
55 Maon,+ Karmel, Síf,+ Júta, 56 Jesreel, Jokdeam, Sanóa, 57 Kaín, Gíbea og Timna+ – tíu borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
58 Halhúl, Bet Súr, Gedór, 59 Maarat, Bet Anót og Eltekón – sex borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
60 Kirjat Baal, það er Kirjat Jearím,+ og Rabba – tvær borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
61 Í óbyggðunum: Bet Araba,+ Middín, Sekaka, 62 Nibsan, Saltborgin og Engedí+ – sex borgir ásamt tilheyrandi þorpum.
63 En Júdamönnum tókst ekki að hrekja burt+ Jebúsítana+ sem bjuggu í Jerúsalem+ og þeir búa því enn þá í Jerúsalem ásamt Júdamönnum.