Sálmur
Söngljóð eftir syni Kóra.+
48 Jehóva er mikill og verðskuldar lof
í borg Guðs okkar, á sínu heilaga fjalli.
2 Það gnæfir hátt og fagurt, gleði allrar jarðar,+
Síonarfjall lengst í norðri,
borg hins mikla konungs.+
4 Konungar söfnuðust saman
og sóttu fram allir sem einn.
5 Þegar þeir sáu borgina urðu þeir furðu lostnir,
fylltust skelfingu og flúðu.
6 Þeir skulfu af hræðslu,
angist greip þá eins og konu í barnsburði.
7 Með austanvindinum brýtur þú Tarsisskipin.
8 Það sem við heyrðum um höfum við nú séð með eigin augum
í borg Jehóva hersveitanna, borg Guðs okkar.
Guð gerir hana óhagganlega að eilífu.+ (Sela)
9 Guð, við hugleiðum tryggan kærleika þinn+
í musteri þínu.
10 Eins og nafn þitt, Guð,
berst lofgjörð um þig til endimarka jarðar.+
Hægri hönd þín er full réttlætis.+