Esterarbók
5 Á þriðja degi+ klæddist Ester drottningarskrúða sínum og gekk inn í innri garðinn við hús* konungs, gegnt húsinu. Konungur sat í hásæti sínu í konungshúsinu á móts við innganginn. 2 Þegar konungur sá Ester drottningu standa í garðinum gladdist hann og rétti gullsprotann+ sem hann hafði í hendinni í átt til hennar. Ester gekk þá til hans og snerti oddinn á sprotanum.
3 Konungur spurði hana: „Hvað liggur þér á hjarta, Ester drottning? Hvað viltu biðja mig um? Þó að það væri hálft ríkið myndirðu fá það.“ 4 Ester svaraði: „Ef konungur vill bið ég þig að koma í dag ásamt Haman+ í veislu sem ég hef undirbúið handa þér.“ 5 Konungur sagði þá við menn sína: „Segið Haman að flýta sér hingað eins og Ester hefur óskað eftir.“ Konungur og Haman fóru síðan til veislunnar sem Ester hafði undirbúið.
6 Þegar þau voru sest að víndrykkjunni spurði konungur Ester: „Hvað langar þig að biðja mig um? Þú færð það sem þú vilt. Hvers óskarðu? Þó að það væri hálft ríkið færðu ósk þína uppfyllta.“+ 7 Ester svaraði: „Ósk mín og beiðni er þessi: 8 Ef konungur hefur velþóknun á mér og ef konungur vill verða við beiðni minni og ósk bið ég þig að koma ásamt Haman til veislu sem ég ætla að halda fyrir ykkur á morgun. Þá skal ég segja hvað mér liggur á hjarta.“
9 Þann dag gekk Haman út glaður og í góðu skapi. En þegar hann sá Mordekaí í konungshliðinu og tók eftir að hann stóð hvorki upp fyrir honum né sýndi óttamerki reiddist hann Mordekaí ákaflega.+ 10 Haman hélt þó aftur af sér og fór heim til sín. Síðan sendi hann eftir vinum sínum og Seres+ konu sinni. 11 Hann hreykti sér af auðæfum sínum, öllum sonum sínum,+ af þeirri upphefð sem konungur hafði veitt honum og því að hann hafði fengið æðri stöðu en allir aðrir höfðingjar og þjónar konungs.+
12 Haman bætti við: „Auk þess bauð Ester drottning engum nema mér og konungi til veislu í dag,+ og á morgun er mér boðið aftur til að vera með henni og konungi.+ 13 Það spillir þó gleði minni að sjá Mordekaí Gyðing sitja í konungshliðinu.“ 14 Seres kona hans og allir vinir hans sögðu þá við hann: „Láttu reisa staur, 50 álna* háan. Og í fyrramálið skaltu leggja til við konung að Mordekaí verði hengdur á staurinn.+ Farðu síðan með konungi og skemmtu þér í veislunni.“ Haman leist vel á þessa hugmynd og lét reisa staurinn.