112 Lofið Jah!+
א [alef]
Sá sem virðir Jehóva er hamingjusamur,+
ב [bet]
sá sem hefur yndi af boðum hans.+
ג [gimel]
2 Afkomendur hans verða voldugir á jörðinni
ד [dalet]
og kynslóð hinna réttlátu hlýtur blessun.+
ה [he]
3 Auður og velmegun eru í húsi hans
ו [vá]
og réttlæti hans varir að eilífu.
ז [zajin]
4 Hann skín hinum hjartahreinu eins og ljós í myrkri.+
ח [het]
Hann sýnir samúð, miskunn+ og réttlæti.
ט [tet]
5 Þeim gengur vel sem lánar fúslega,+
י [jód]
hann er réttlátur í öllu sem hann gerir.
כ [kaf]
6 Hann haggast aldrei.+
ל [lamed]
Hins réttláta verður minnst að eilífu.+
מ [mem]
7 Hann óttast ekki slæmar fréttir,+
נ [nún]
hann er staðfastur í hjarta og treystir Jehóva.+
ס [samek]
8 Hann er óhagganlegur í hjarta og ekki hræddur.+
ע [ajin]
Að lokum fær hann að sjá andstæðinga sína falla.+
פ [pe]
9 Hann deilir út gjöfum örlátlega, hann gefur fátækum.+
צ [tsade]
Réttlæti hans varir að eilífu,+
ק [qóf]
styrkur hans eykst og er upphafinn.
ר [res]
10 Hinn illi sér það og honum gremst,
ש [shin]
hann gnístir tönnum og veslast upp.
ת [tá]
Óskir hins illa verða að engu.+