Jeremía
45 Þennan boðskap flutti Jeremía spámaður Barúk+ Neríasyni þegar hann skrifaði í bók öll þau orð sem Jeremía las honum fyrir+ á fjórða stjórnarári Jójakíms+ Jósíasonar Júdakonungs:
2 „Þetta segir Jehóva Guð Ísraels um þig, Barúk: 3 ‚Þú hefur sagt: „Aumingja ég því að Jehóva hefur bætt sorg við kvöl mína! Ég er þreyttur á að stynja og finn enga ró.“‘
4 Þú skalt segja við hann: ‚Jehóva segir: „Það sem ég hef byggt upp ríf ég niður og það sem ég hef gróðursett uppræti ég um allt landið.+ 5 En þú ætlar þér stóra hluti.* Hættu því.“‘
‚Ég leiði ógæfu yfir alla menn,‘+ segir Jehóva, ‚en ég gef þér líf þitt að herfangi* hvert sem þú ferð.‘“+