Amos
9 Ég sá Jehóva+ standa yfir altarinu og hann sagði: „Sláðu á höfuð súlnanna svo að þröskuldarnir skjálfi. Þú skalt höggva af þeim höfuðið og þá sem eftir eru af þeim drep ég með sverði. Enginn sem flýr kemst undan og engum tekst að sleppa.+
2 Þótt þeir grafi sig niður í gröfina*
mun hönd mín sækja þá þangað
og þótt þeir stígi upp til himins
mun ég ná í þá þangað.
3 Þótt þeir feli sig á toppi Karmelfjalls
mun ég leita þá uppi og góma þá.+
Þótt þeir reyni að dyljast augum mínum á hafsbotni
skipa ég snáknum að bíta þá þar.
4 Þótt þeir verði reknir í útlegð af óvinum sínum
skipa ég sverðinu að drepa þá þar.+
Ég beini sjónum mínum að þeim, ekki til góðs heldur til ills.+
5 Alvaldur Drottinn, Jehóva hersveitanna, snertir landið*
Allt landið mun rísa eins og Nílarfljót
og réna eins og Níl í Egyptalandi.+
6 ‚Hann sem smíðar stiga sinn á himnum
og reisir hvelfingu* sína yfir jörðina,
hann sem kallar á vatnið í hafinu
og eys því á yfirborð jarðar+
– Jehóva er nafn hans.‘+
7 ‚Eruð þið Ísraelsmenn mér ekki eins og synir Kúsíta?‘ segir Jehóva.
8 ‚Augu alvalds Drottins Jehóva fylgjast með þessu synduga ríki
og hann mun afmá það af yfirborði jarðar.+
En ég mun ekki afmá ætt Jakobs með öllu,‘+ segir Jehóva.
9 ‚Ég gef skipunina
og hristi Ísraelsmenn meðal allra þjóða+
eins og þegar sigti er hrist
án þess að nokkur steinvala falli til jarðar.
10 Allir syndarar þjóðar minnar munu falla fyrir sverði,
þeir sem segja: „Ógæfan nær ekki til okkar né kemur yfir okkur.“‘
11 ‚Á þeim degi endurreisi ég hið fallna hús* Davíðs,+
ég fylli upp í sprungurnar
og reisi það úr rústum.
Ég byggi það aftur eins og það var forðum daga+
12 svo að þeir nái undir sig því sem eftir er af Edóm+
og öllum þeim þjóðum sem nafn mitt er nefnt yfir,‘ segir Jehóva, hann sem gerir þetta.
13 ‚Þeir dagar koma,‘ segir Jehóva,
‚þegar sá sem plægir nær kornskurðarmanninum
og sá sem treður vínber sáðmanninum.+
14 Ég safna saman útlögum þjóðar minnar, Ísraels.+
Þeir munu endurreisa yfirgefnu borgirnar og setjast þar að.+
15 ‚Ég gróðurset þá í landi þeirra
og þeir verða aldrei aftur upprættir
úr landinu sem ég hef gefið þeim,‘+ segir Jehóva Guð þinn.“