Sálmur
Til tónlistarstjórans. Við „Eyddu ekki“. Miktam* eftir Davíð þegar Sál sendi menn til að vakta hús Davíðs* og drepa hann.+
2 Bjargaðu mér frá þeim sem gera illt,
frelsaðu mig frá ofbeldismönnum.*
3 Þeir sitja fyrir mér,+
sterkir menn ráðast á mig
þótt ég hafi hvorki gert uppreisn, Jehóva, né syndgað.+
4 Þeir hlaupa og búast til atlögu þótt ég hafi ekkert brotið af mér.
Vaknaðu þegar ég hrópa og sjáðu hvað þeir gera
5 því að þú, Jehóva, Guð hersveitanna, ert Guð Ísraels.+
Vaknaðu og líttu á það sem allar þjóðirnar gera,
þyrmdu engum illgjörnum svikara.+ (Sela)
9 Þú ert styrkur minn, ég skyggnist eftir þér.+
10 Guð kemur mér til hjálpar, hann sem sýnir mér tryggan kærleika.+
Guð lætur mig sjá óvini mína falla.+
11 Dreptu þá ekki svo að þjóð mín gleymi ekki,
rektu þá á flæking með mætti þínum
og brjóttu þá á bak aftur, Jehóva, þú sem ert skjöldur okkar.+
12 Þeir syndga með munni sínum, með orðum vara sinna.
Láttu þá flækjast í eigin hroka+
vegna bölvana þeirra og lyga.
13 Gerðu út af við þá í reiði þinni,+
gerðu út af við þá svo að þeir hverfi með öllu.
Gerðu þeim ljóst að Guð ríkir yfir Jakobi og til endimarka jarðar.+ (Sela)
15 Láttu þá reika um í leit að æti,+
megi þeir hvorki verða saddir né finna sér næturskjól.
16 En ég vil syngja um mátt þinn,+
segja fagnandi frá tryggum kærleika þínum að morgni
því að þú ert mér öruggt athvarf,+
til þín get ég flúið þegar erfiðleikar dynja á.+
17 Þú ert styrkur minn, ég vil syngja þér lof.*+
Guð er mér öruggt athvarf, hann sem sýnir mér tryggan kærleika.+