Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð.
65 Guð, lofsöngur bíður þín á Síon,+
við viljum efna heit okkar við þig.+
2 Þú sem heyrir bænir, til þín kemur alls konar fólk.+
3 Syndir mínar bera mig ofurliði+
en þú fyrirgefur afbrot okkar.+
4 Sá er hamingjusamur sem þú velur og lætur nálgast þig,
hann fær að búa í forgörðum þínum.+
Við fáum að seðjast af öllu því góða í húsi þínu,+
þínu heilaga musteri.+
5 Þú svarar okkur með stórfenglegum réttlætisverkum,+
Guð okkar og frelsari.
Fólk treystir á þig við endimörk jarðar+
og á fjarlægum ströndum.
6 Þú grundvallaðir fjöllin með krafti þínum,
þú ert klæddur mætti.+
7 Þú lægir ólgandi höfin,+
drunurnar í öldunum og óróa þjóðanna.+
8 Íbúar afskekktra svæða fyllast lotningu þegar þeir sjá tákn þín,+
frá austri til vesturs færðu fólk til að hrópa af gleði.
9 Þú annast jörðina,
gerir hana frjósama og gjöfula.+
Lækur Guðs er bakkafullur,
þú sérð mönnunum fyrir korni+
því að þannig gerðir þú jörðina úr garði.
10 Þú gegnbleytir plógför hennar og jafnar út plægðan akurinn,
þú mýkir hann með regnskúrum og blessar það sem á honum sprettur.+
11 Þú kórónar árið með góðvild þinni,
spor þín fljóta í gæðum.+
12 Beitilönd óbyggðanna drjúpa af vatni+
og hæðirnar eru klæddar fögnuði.+
13 Hagarnir eru þaktir hjörðum
og dalirnir huldir korni.+
Allt hrópar af fögnuði og syngur.+