Lúkas segir frá
3 Á 15. stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu, Heródes*+ héraðsstjóri* í Galíleu, Filippus bróðir hans héraðsstjóri í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías héraðsstjóri í Abílene, 2 á dögum Annasar yfirprests og Kaífasar,+ kom orð Guðs til Jóhannesar+ Sakaríasonar í óbyggðunum.+
3 Hann fór þá um allt svæðið meðfram Jórdan og boðaði að fólk ætti að skírast til tákns um iðrun svo að það gæti fengið syndir sínar fyrirgefnar.+ 4 Um þetta er skrifað í bókinni sem geymir orð Jesaja spámanns: „Rödd manns hrópar í óbyggðunum: ‚Greiðið veg Jehóva!* Gerið brautir hans beinar.+ 5 Hver dalur skal fyllast og hvert fjall og hæð jafnast út, krókóttir vegir verða beinir og ójafnir vegir sléttir 6 og allir munu* sjá þá frelsun sem Guð veitir.‘“*+
7 Þegar fólk þyrptist að til að láta hann skíra sig sagði hann: „Þið nöðruafkvæmi, hver sagði ykkur að þið gætuð flúið hina komandi reiði?+ 8 Berið ávöxt sem sýnir* að þið hafið iðrast. Segið ekki með sjálfum ykkur: ‚Abraham er faðir okkar.‘ Ég segi ykkur að Guð getur myndað börn handa Abraham úr þessum steinum. 9 Öxin liggur nú þegar við rætur trjánna. Þau tré sem bera ekki góðan ávöxt verða höggvin og þeim kastað í eldinn.“+
10 En fólkið spurði hann: „Hvað eigum við þá að gera?“ 11 Hann svaraði: „Sá sem á tvenn föt* taki önnur þeirra og gefi þeim sem á engin og sá sem á eitthvað að borða gefi þeim sem hefur ekkert.“+ 12 Jafnvel skattheimtumenn komu til að skírast+ og sögðu við hann: „Kennari, hvað eigum við að gera?“ 13 Hann svaraði: „Heimtið* ekki hærri skatt en lögboðið er.“+ 14 Hermenn spurðu hann líka: „Hvað eigum við að gera?“ Hann sagði við þá: „Kúgið ekki fé af neinum og berið ekki á þá rangar sakir+ heldur verið ánægðir með það sem þið fáið.“*
15 Nú var fólk eftirvæntingarfullt og velti fyrir sér hvort Jóhannes gæti verið Kristur.+ 16 Jóhannes svaraði öllum og sagði: „Ég skíri ykkur með vatni en sá kemur sem er máttugri en ég og ég er ekki þess verðugur að leysa ólarnar á sandölum hans.+ Hann mun skíra ykkur með heilögum anda og eldi.+ 17 Hann er með varpskófluna* í hendi til að gerhreinsa þreskivöllinn. Hann safnar hveitinu í hlöðu sína en brennir hismið í óslökkvandi eldi.“
18 Jóhannes leiðbeindi fólki líka á marga aðra vegu og boðaði því fagnaðarboðskapinn. 19 Hann ávítaði Heródes héraðsstjóra vegna Heródíasar, konu bróður hans, og alls hins illa sem hann hafði gert. 20 Þá vann Heródes enn eitt vonskuverkið: Hann varpaði Jóhannesi í fangelsi.+
21 Þegar allt fólkið skírðist lét Jesús einnig skírast.+ Meðan hann baðst fyrir opnuðust himnarnir+ 22 og heilagur andi kom niður yfir hann í sýnilegri* mynd, eins og dúfa, og rödd heyrðist af himni: „Þú ert sonur minn sem ég elska. Ég hef velþóknun á þér.“+
23 Jesús+ var um þrítugt þegar hann hóf starf sitt.+ Almennt var hann talinn
sonur Jósefs,+
sonar Elí,
24 sonar Mattats,
sonar Leví,
sonar Melkí,
sonar Jannaí,
sonar Jósefs,
25 sonar Mattatíasar,
sonar Amosar,
sonar Nahúms,
sonar Eslí,
sonar Naggaí,
26 sonar Maats,
sonar Mattatíasar,
sonar Semeíns,
sonar Jóseks,
sonar Jóda,
27 sonar Jóhanans,
sonar Hresa,
sonar Serúbabels,+
sonar Sealtíels,+
sonar Nerí,
28 sonar Melkí,
sonar Addí,
sonar Kósams,
sonar Elmadams,
sonar Ers,
29 sonar Jesú,
sonar Elíesers,
sonar Jóríms,
sonar Mattats,
sonar Leví,
30 sonar Símeons,
sonar Júdasar,
sonar Jósefs,
sonar Jónams,
sonar Eljakíms,
31 sonar Melea,
sonar Menna,
sonar Mattata,
sonar Natans,+
sonar Davíðs,+
32 sonar Ísaí,+
sonar Óbeðs,+
sonar Bóasar,+
sonar Salmóns,+
sonar Naksons,+
33 sonar Ammínadabs,
sonar Arní,
sonar Hesróns,
sonar Peresar,+
sonar Júda,+
34 sonar Jakobs,+
sonar Ísaks,+
sonar Abrahams,+
sonar Tera,+
sonar Nahors,+
35 sonar Serúgs,+
sonar Reú,+
sonar Pelegs,+
sonar Ebers,+
sonar Sela,+
36 sonar Kenans,
sonar Arpaksads,+
sonar Sems,+
sonar Nóa,+
sonar Lameks,+
37 sonar Metúsala,+
sonar Enoks,
sonar Jareds,+
sonar Mahalalels,+
sonar Kenans,+
sonar Sets,+
sonar Adams,+
sonar Guðs.