Sálmur
Til tónlistarstjórans. Eftir syni Kóra.+ Í alamót-stíl.* Söngljóð.
2 Þess vegna óttumst við ekki þótt jörðin skjálfi
og fjöllin steypist í djúp hafsins,+
3 þótt hafið ólgi og freyði+
og fjöllin nötri af ofsa þess. (Sela)
4 Fljót kvíslast og gleður borg Guðs,+
stórfenglegan og heilagan bústað Hins hæsta.
5 Guð er í borginni,+ henni verður ekki haggað.
Guð kemur henni til bjargar þegar birtir af degi.+
6 Þjóðirnar ólguðu, ríkin féllu,
hann brýndi raustina og jörðin nötraði.+
8 Komið og sjáið verk Jehóva,
allt það undursamlega sem hann hefur gert á jörðinni.
9 Hann stöðvar stríð um alla jörð.+
Hann brýtur bogann, mölvar spjótið,
brennir stríðsvagna* í eldi.
10 „Gefist upp og skiljið að ég er Guð.