Sakaría
1 Í áttunda mánuði annars stjórnarárs Daríusar+ kom orð Jehóva til Sakaría*+ spámanns, sonar Berekía Iddóssonar: 2 „Jehóva varð mjög reiður út í forfeður ykkar.+
3 Segðu við fólkið: ‚Þetta segir Jehóva hersveitanna: „‚Snúið aftur til mín,‘ segir Jehóva hersveitanna, ‚þá sný ég aftur til ykkar,‘+ segir Jehóva hersveitanna.“‘
4 ‚Verið ekki eins og forfeður ykkar sem spámenn fyrri tíma fluttu þessi boð: „Jehóva hersveitanna segir: ‚Snúið baki við* illsku ykkar og vondum verkum.‘“‘+
‚En þeir hlustuðu ekki og gáfu mér engan gaum,‘+ segir Jehóva.
5 ‚Hvar eru forfeður ykkar núna? Og lifðu spámennirnir að eilífu? 6 Fengu ekki forfeður ykkar að kenna á orðum mínum og úrskurðum sem ég lét þjóna mína, spámennina, flytja?‘+ Þá sneru þeir aftur til mín og sögðu: ‚Jehóva hersveitanna hefur farið með okkur eins og hann ákvað í samræmi við hegðun okkar og verk.‘“+
7 Á 24. degi 11. mánaðarins, það er sebat,* á öðru stjórnarári Daríusar+ kom orð Jehóva til Sakaría spámanns, sonar Berekía Iddóssonar. 8 Ég sá sýn um nóttina. Maður reið rauðum hesti og nam staðar hjá myrtutrjánum í gilinu. Fyrir aftan hann voru rauðir, rauðjarpir og hvítir hestar.
9 Ég spurði: „Hverjir eru þetta sem ríða hestunum, herra minn?“
Engillinn sem talaði við mig svaraði: „Ég skal sýna þér það.“
10 Þá sagði maðurinn sem hafði staðnæmst hjá myrtutrjánum: „Þetta eru þeir sem Jehóva hefur sent til að kanna jörðina.“ 11 Og þeir sögðu við engil Jehóva sem stóð hjá myrtutrjánum: „Við höfum farið um alla jörðina og alls staðar er kyrrð og ró.“+
12 Þá sagði engill Jehóva: „Jehóva hersveitanna, hversu lengi ætlarðu að halda miskunn þinni frá Jerúsalem og borgum Júda+ sem þú hefur verið reiður út í þessi 70 ár?“+
13 Jehóva svaraði englinum, sem talaði við mig, með hlýlegum og huggandi orðum. 14 Síðan sagði engillinn sem talaði við mig: „Hrópaðu: ‚Þetta segir Jehóva hersveitanna: „Með brennandi ákafa vernda ég Jerúsalem og Síon.+ 15 Ég er mjög reiður út í þjóðirnar sem eru öruggar með sig.+ Ég reiddist áður í litlum mæli+ en þjóðirnar juku á ógæfuna.“‘+
16 Þess vegna segir Jehóva: ‚„Í miskunn sný ég aftur til Jerúsalem+ og hús mitt verður byggt þar,“+ segir Jehóva hersveitanna, „og mælisnúra verður strengd yfir Jerúsalem.“‘+
17 Hrópaðu einnig: ‚Jehóva hersveitanna segir: „Borgir mínar munu aftur fljóta í gæðum. Jehóva huggar Síon+ á nýjan leik og Jerúsalem verður aftur útvalin borg mín.“‘“+
18 Nú leit ég upp og sá fjögur horn.+ 19 Ég spurði engilinn sem talaði við mig: „Hvað táknar þetta?“ Hann svaraði: „Þetta eru hornin sem tvístruðu Júda,+ Ísrael+ og Jerúsalem.“+
20 Jehóva sýndi mér síðan fjóra handverksmenn. 21 „Hvað ætla þeir að gera?“ spurði ég.
Hann svaraði: „Hornin eru þeir sem tvístruðu Júda svo að enginn gat staðist frammi fyrir þeim. Handverksmennirnir koma til að skelfa þau, til að steypa niður hornum þjóðanna sem beittu hornunum gegn Júda og tvístruðu þeim sem bjuggu þar.“