Sálmur
95 Komið, hrópum af gleði til Jehóva!
Hrópum sigurglöð fyrir klettinum sem bjargar okkur.+
2 Göngum fram fyrir hann* og þökkum honum,+
syngjum og hrópum sigurglöð fyrir honum
3 því að Jehóva er mikill Guð,
mikill konungur yfir öllum öðrum guðum.+
4 Djúp jarðar eru í hendi hans,
fjallatindarnir tilheyra honum.+
6 Komum, föllum fram og tilbiðjum,
krjúpum fyrir Jehóva, skapara okkar,+
7 því að hann er Guð okkar
og við erum fólkið í haglendi hans,
Ef þið heyrið rödd hans í dag+
8 þá forherðið ekki hjörtu ykkar eins og við Meríba,*+
eins og daginn hjá Massa* í óbyggðunum+
9 þegar forfeður ykkar reyndu mig.+
Þeir ögruðu mér þótt þeir hefðu séð allt sem ég gerði.+
10 Í 40 ár hafði ég óbeit á þessari kynslóð og sagði:
„Þetta er fólk sem fer alltaf afvega í hjörtum sínum,
það hefur ekki kynnst vegum mínum.“
11 Þess vegna sór ég í reiði minni:
„Þeir fá ekki að ganga inn til hvíldar minnar.“+