Síðari Samúelsbók
23 Þetta eru síðustu orð Davíðs:+
‚Þegar sá sem ríkir yfir mönnunum er réttlátur+
og ríkir í guðsótta+
4 er stjórn hans eins og dagsbirtan þegar sólin rennur upp,+
eins og heiðskír morgunn,
eins og glampandi sólskin eftir regnskúr
sem lætur grasið spretta á jörðinni.‘+
5 Er það ekki þannig sem Guð lítur á ætt mína?
Hann hefur gert við mig eilífan sáttmála,+
greinargóðan og áreiðanlegan.
Þessi sáttmáli frelsar mig að öllu leyti og veitir mér einskæra gleði.
Einmitt þess vegna lætur hann ætt mína dafna.+
6 En öllum þrjótum er kastað burt+ eins og þyrnirunnum,
enginn getur tekið þá með berum höndum.
7 Sá sem snertir þá
þarf að vera vopnaður járni og spjótskafti,
og þeir verða brenndir á staðnum.“
8 Þetta eru nöfnin á stríðsköppum Davíðs:+ Jóseb Bassebet Hakmóníti, höfðingi hinna þriggja.+ Einu sinni sveiflaði hann spjóti sínu og drap yfir 800 menn. 9 Næstur honum var Eleasar,+ sonur Dódós+ Ahóhísonar. Hann var einn af stríðsköppunum þrem sem voru með Davíð þegar þeir skoruðu á Filistea, en Filistear höfðu þá safnast saman til bardaga. Þegar Ísraelsmenn hörfuðu 10 stóð hann fastur fyrir og felldi Filisteana þar til hann þreyttist í hendinni og hún krepptist föst um sverðið.+ Jehóva veitti mikinn sigur þennan dag.+ Liðið fór á eftir Eleasar til að taka ránsfeng.
11 Næstur honum var Samma Ageson Hararíti. Eitt sinn söfnuðust Filistear saman við Lekí. Þar var linsubaunaakur. Liðið flúði undan Filisteum 12 en hann tók sér stöðu á miðjum akrinum, varði hann og felldi Filisteana. Þannig veitti Jehóva mikinn sigur.+
13 Einu sinni um uppskerutímann fóru þrír af höfðingjunum 30 niður eftir til Davíðs í Adúllamhelli.+ Flokkur Filistea hafði þá slegið upp búðum í Refaímdal.*+ 14 Davíð var í fjallavíginu+ en Filistear voru með varðsveit í Betlehem. 15 Þá sagði Davíð: „Ég vildi óska að ég gæti fengið vatn að drekka úr brunninum við borgarhliðið í Betlehem.“ 16 Stríðskapparnir þrír brutust þá inn í herbúðir Filistea og sóttu vatn í brunninn við borgarhliðið í Betlehem. Þeir færðu Davíð vatnið en hann vildi ekki drekka það heldur hellti því niður frammi fyrir Jehóva.+ 17 Hann sagði: „Jehóva, það kemur ekki til greina að ég geri þetta. Á ég að drekka blóð+ þessara manna sem hættu lífi sínu með því að fara þangað?“ Þess vegna vildi hann ekki drekka vatnið. Þetta gerðu kapparnir þrír.
18 Abísaí+ Serújuson+ bróðir Jóabs fór fyrir öðru þríeyki. Einu sinni sveiflaði hann spjóti sínu og drap yfir 300 menn. Hann var jafn frægur og þrír bestu stríðskappar Davíðs.+ 19 Hann skaraði fram úr í þríeykinu sem hann fór fyrir en jafnaðist þó ekki á við kappana þrjá.
20 Benaja+ Jójadason var hugrakkur maður* sem vann mörg þrekvirki í Kabseel.+ Hann drap báða syni Aríels frá Móab og eitt sinn þegar snjóaði fór hann ofan í gryfju og drap þar ljón.+ 21 Hann drap líka risavaxinn Egypta. Egyptinn var með spjót í hendi en Benaja fór á móti honum með staf, hrifsaði spjótið úr hendi hans og drap hann með hans eigin spjóti. 22 Þetta gerði Benaja Jójadason. Hann var jafn frægur og þrír bestu stríðskappar Davíðs. 23 Hann skaraði fram úr hinum þrjátíu en jafnaðist þó ekki á við kappana þrjá. Davíð setti hann yfir lífvarðarsveit sína.
24 Asael+ bróðir Jóabs var einn hinna þrjátíu, einnig Elkanan, sonur Dódós frá Betlehem,+ 25 Samma Haródíti, Elíka Haródíti, 26 Heles+ frá Bet Pelet,* Íra,+ sonur Íkkess frá Tekóa, 27 Abíeser+ frá Anatót,+ Mebúnaí Húsatíti, 28 Salmón Ahóhíti, Maharaí+ Netófatíti, 29 Heleb, sonur Baana Netófatíta, Íttaí, sonur Ríbaí frá Gíbeu í Benjamín, 30 Benaja+ Píratoníti, Híddaí frá flóðdölum* Gaas,+ 31 Abi Albon frá Bet Araba, Asmavet frá Bahúrím, 32 Eljahba Saalbóníti, synir Jasens, Jónatan, 33 Samma Hararíti, Ahíam, sonur Sarars Hararíta, 34 Elífelet, sonur Ahasbaí sem var sonur Maakatíta, Elíam, sonur Akítófels+ Gílóníta, 35 Hesró Karmelíti, Paaraí frá Arab, 36 Jígal, sonur Natans frá Sóba, Baní Gaðíti, 37 Selek Ammóníti, Nahraí frá Beerót, skjaldsveinn Jóabs Serújusonar, 38 Íra Jítríti, Gareb Jítríti+ 39 og Úría+ Hetíti. Alls voru þeir 37 talsins.