Jósúabók
17 Síðan var ættkvísl Manasse+ úthlutað landi með hlutkesti+ þar sem hann var frumburður+ Jósefs. Makír,+ frumburður Manasse og faðir Gíleaðs, var mikill hermaður og þess vegna fékk hann Gíleað og Basan.+ 2 Hinum afkomendum Manasse var úthlutað landi með hlutkesti, hverri ætt fyrir sig, sonum Abíesers,+ sonum Heleks, sonum Asríels, sonum Sekems, sonum Hefers og sonum Semída. Þessir karlmenn voru afkomendur Manasse Jósefssonar, ætt fyrir ætt.+ 3 En Selofhað+ Hefersson, sonar Gíleaðs, sonar Makírs, sonar Manasse, átti enga syni, aðeins dætur. Þær hétu Mahla, Nóa, Hogla, Milka og Tirsa. 4 Þær gengu fyrir Eleasar+ prest, Jósúa Núnsson og höfðingjana og sögðu: „Jehóva gaf Móse fyrirmæli um að gefa okkur erfðaland meðal bræðra okkar.“+ Þær fengu þá erfðaland meðal föðurbræðra sinna í samræmi við fyrirmæli Jehóva.+
5 Manasse hlaut sem sagt tíu hluti auk Gíleaðs og Basans sem voru hinum megin* Jórdanar+ 6 því að dætur Manasse fengu erfðaland ásamt sonum hans. En aðrir afkomendur Manasse fengu Gíleaðland.
7 Landamæri Manasse lágu frá Asser til Mikmetat,+ sem er á móts við Síkem,+ og áfram suður* að landinu sem tilheyrði íbúum En Tappúa. 8 Manasse fékk landið í kringum Tappúa+ en borgin Tappúa á landamærum Manasse tilheyrði afkomendum Efraíms. 9 Þaðan lágu landamærin niður að Kanaá,* sunnan við flóðdalinn. Þar átti Efraím borgir innan um borgir Manasse,+ og landamæri Manasse lágu norðan við flóðdalinn og náðu allt til sjávar.+ 10 Landið sunnan megin tilheyrði Efraím og landið norðan megin Manasse og hafið var landamæri hans.+ Í norðri náði land Manasse* til Assers og í austri til Íssakars.
11 Á landsvæði Íssakars og Assers fékk Manasse eftirfarandi borgir ásamt tilheyrandi bæjum* og íbúum: Bet Sean, Jibleam,+ Dór,+ Endór,+ Taanak+ og Megiddó. Þrjár af hæðunum tilheyra honum.
12 En afkomendum Manasse tókst ekki að leggja þessar borgir undir sig. Kanverjar voru fastir fyrir og bjuggu áfram á þessu landsvæði.+ 13 Þegar Ísraelsmenn efldust létu þeir Kanverjana vinna nauðungarvinnu+ en þeir hröktu þá ekki burt með öllu.+
14 Afkomendur Jósefs sögðu við Jósúa: „Hvers vegna hefurðu bara úthlutað okkur* einum hlut+ að erfðalandi? Við erum fjölmenn því að Jehóva hefur blessað okkur hingað til.“+ 15 Jósúa svaraði þeim: „Fyrst þið eruð svona fjölmenn og það er of þröngt um ykkur í fjalllendi Efraíms,+ farið þá upp í skógana í landi Peresíta+ og Refaíta+ og ryðjið þar land fyrir ykkur.“ 16 Þá sögðu afkomendur Jósefs: „Fjalllendið nægir okkur ekki og allir Kanverjarnir sem búa í dalnum* eiga stríðsvagna+ með járnhnífum á hjólunum,* bæði þeir sem búa í Bet Sean+ og tilheyrandi bæjum* og í Jesreeldal.“*+ 17 Jósúa sagði þá við ættkvíslir Efraíms og Manasse, afkomendur Jósefs: „Þið eruð fjölmenn og öflug. Þið fáið ekki bara einn hlut+ 18 heldur verður allt fjalllendið ykkar eign.+ Þar er skógur en þið skuluð ryðja hann og þar endar land ykkar. Þið munuð hrekja burt Kanverjana þó að þeir séu kraftmiklir og eigi stríðsvagna með járnhnífum á hjólunum.“*+