Sálmur
94 Jehóva, Guð hefndarinnar,+
Guð hefndarinnar, gakktu geislandi fram!
2 Rístu á fætur, dómari jarðar.+
Veittu hinum hrokafullu það sem þeir verðskulda.+
3 Hve lengi, Jehóva,
hve lengi fá hinir illu að fagna?+
4 Þeir þvaðra og tala með hroka,
allir illvirkjarnir monta sig.
5 Þeir troða niður fólk þitt, Jehóva,+
og kúga arfleifð þína.
6 Þeir drepa ekkjuna og útlendinginn
og myrða föðurlausu börnin.
8 Skiljið þetta, óskynsömu menn,
þið heimskingjar, hvenær ætlið þið að vitkast?+
9 Getur sá sem skapaði eyrað ekki heyrt?
Getur sá sem myndaði augað ekki séð?+
10 Getur sá sem leiðréttir þjóðirnar ekki agað?+
Það er hann sem veitir fólkinu þekkingu.+
11 Jehóva þekkir hugsanir mannanna,
veit að þær eru eins og vindgustur.+
12 Sá sem þú leiðréttir, Jah, er hamingjusamur,+
sá sem þú kennir lög þín,+
13 til að veita honum frið og ró á erfiðum tímum
þar til gröf er grafin fyrir hina illu.+
15 Dómarnir verða aftur réttlátir
og allir hjartahreinir fylgja þeim.
16 Hver mun verja mig gegn illmennum?
Hver stendur með mér gegn afbrotamönnum?
23 Hann lætur vonskuverk þeirra koma þeim í koll.+
Hann lætur illsku sjálfra þeirra gera út af við þá.*