Sálmur
Ég var máttvana af sorg og angist.+
4 En ég ákallaði nafn Jehóva:+
„Jehóva, bjargaðu mér!“
6 Jehóva verndar hina óreyndu.+
Ég var langt niðri og hann hjálpaði mér.
7 Láttu mig finna hugarró á ný
því að þú, Jehóva, hefur verið mér góður.
8 Þú hefur bjargað mér frá dauða,
auga mínu frá tárum og fæti mínum frá hrösun.+
9 Ég geng frammi fyrir Jehóva í landi hinna lifandi.
10 Ég trúði og því talaði ég.+
Ég var sárþjáður.
11 Ég var skelfingu lostinn og sagði:
„Allir menn eru lygarar.“+
12 Hvernig á ég að endurgjalda Jehóva
allt það góða sem hann hefur gert fyrir mig?
13 Ég lyfti bikar frelsisins*
og ákalla nafn Jehóva.
16 Ég bið til þín, Jehóva,
því að ég er þjónn þinn.
Ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar.
Þú hefur frelsað mig úr fjötrum mínum.+
17 Ég færi þér þakkarfórn,+
ég ákalla nafn Jehóva.