Sálmur
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð.
2 Jehóva gætir hans og lætur hann halda lífi,
um alla jörð fer orð af því hve hamingjusamur hann er.+
Þú gefur hann aldrei á vald óvina hans.+
5 En óvinir mínir óska mér ills:
„Hvenær ætlar hann að fara að deyja svo að nafn hans gleymist?“
6 Ef einhver kemur til að heimsækja mig er hann fullur hræsni.
Hann leitar að einhverju til að nota gegn mér,
fer síðan og breiðir út lygar um mig.
7 Allir sem hata mig hvísla sín á milli,
þeir vilja mér illt og segja:
10 En þú, Jehóva, vertu mér góður og hjálpaðu mér á fætur
svo að ég geti refsað þeim fyrir það sem þeir hafa gert.
11 Þegar óvinur minn getur ekki hrósað sigri yfir mér
veit ég að þú hefur velþóknun á mér.+
Amen og amen.