Jobsbók
22 Þá sagði Elífas+ Temaníti:
2 „Kemur nokkur maður Guði að gagni?
Getur vitur maður gert honum gagn?+
3 Skiptir máli fyrir* Hinn almáttuga að þú sért réttlátur
eða hefur hann ávinning af því að þú gerir það sem er rétt?+
4 Refsar hann þér
og dregur þig fyrir dóm fyrir að sýna sér lotningu?
5 Er það ekki vegna mikillar illsku þinnar
og endalausra synda?+
6 Þú tekur veð af bræðrum þínum að ástæðulausu
og hirðir fötin af fólki og skilur það eftir nakið.+
7 Þú gefur ekki þreyttum manni vatnssopa
og þú synjar hinum hungraða um mat.+
8 Hinn voldugi á landið+
og forréttindamaðurinn býr þar.
11 Þess vegna er svo dimmt að þú sérð ekki neitt
og vatnsflaumur færir þig í kaf.
12 Er ekki Guð í himinhæðum?
Sjáðu hve hátt uppi allar stjörnurnar eru.
13 Samt segir þú: ‚Hvað veit Guð eiginlega?
Getur hann dæmt gegnum svartamyrkur?
14 Hann er hulinn bak við ský og sér ekkert
þar sem hann gengur um á himinhvolfinu.‘
15 Ætlar þú að fylgja hinum forna stíg
sem illir menn hafa fetað,
16 menn sem voru hrifnir burt fyrir aldur fram,
sem var skolað burt eins og húsi í flóði?+
17 Þeir sögðu við hinn sanna Guð: ‚Láttu okkur í friði!‘
og: ‚Hvað getur Hinn almáttugi gert okkur?‘
18 Það var samt hann sem fyllti hús þeirra góðum gjöfum.
(Svona illar hugsanir eru fjarri mér.)
19 Hinn réttláti sér þá falla og fagnar,
hinn saklausi hæðist að þeim og segir:
20 ‚Andstæðingum okkar hefur verið útrýmt
og eldur eyðir því sem eftir er af þeim.‘
21 Kynnstu Guði og þú færð frið,
þá hlýturðu velgengni.
22 Taktu við lögunum af munni hans
og geymdu orð hans í hjarta þér.+
23 Ef þú snýrð aftur til Hins almáttuga verður allt eins og áður var.+
Ef þú fjarlægir ranglætið úr tjaldi þínu,
24 ef þú kastar gulli þínu* á jörðina
og Ófírgullinu+ í klettagljúfrin*
25 þá verður Hinn almáttugi gull þitt*
og hann verður þitt fegursta silfur.
26 Þá muntu gleðjast yfir Hinum almáttuga
og snúa augum þínum til Guðs.
27 Þú munt ákalla hann og hann hlustar á þig
og þú heldur heit þín við hann.
28 Allt sem þú ákveður að gera fer vel
og ljós lýsir upp braut þína.
29 Hinn hrokafulli verður niðurlægður
en hann frelsar hinn auðmjúka.*
30 Hann bjargar saklausum
og þess vegna verður þér bjargað ef hendur þínar eru hreinar.“