Söngur 17
Áfram, vottar Guðs
1. Staðföst við erum á endalokatíð
og árvökur verjum Guðs boðskap ár og síð.
Þótt Satan enn háðsyrði segi
fram nú sækjum og óttumst við hann eigi.
(VIÐLAG)
Því áfram nú vottar hans, verið djörf og sterk
og vitið að saman þið vinnið Drottins verk.
Og boðið um allt að Guðs blessun nálæg er
því að brátt verður paradís Guðs hér.
2. Stríðsmenn Jah Guðs taka lífið ekki létt,
þeir leita ei vinsælda heldur breyta rétt.
Þeir flekklausir, stöðugir standa,
sýna staðfasta ráðvendni að vanda.
(VIÐLAG)
Því áfram nú vottar hans, verið djörf og sterk
og vitið að saman þið vinnið Drottins verk.
Og boðið um allt að Guðs blessun nálæg er
því að brátt verður paradís Guðs hér.
3. Guðsríkisvoninni hafnað hafa menn
og heilögu nafni hans afneita þeir enn.
Að helgun þess heilshugar vinnum,
allri heimsbyggð við óttalaust það kynnum.
(VIÐLAG)
Því áfram nú vottar hans, verið djörf og sterk
og vitið að saman þið vinnið Drottins verk.
Og boðið um allt að Guðs blessun nálæg er
því að brátt verður paradís Guðs hér.
(Sjá einnig Fil. 1:7; 2. Tím. 2:3, 4; Jak. 1:27.)