SÖNGUR 31
Göngum með Guði
(Míka 6:8)
1. Með Guði hógvær göngum öll
og góðvild ástundum við.
Með Jehóva nærri nýtum hans styrk,
af náð hann kraft sinn veitir.
Í orðin ósvikin höldum fast,
þá aldrei berumst frá.
En leyfum Guði’ að lýsa slóð
og hans leiðsögn hlustum á.
2. Með Guði hreinleik gakktu í,
hið góða hugfestu vel.
Þú fulltreystir Guði freistingum í
og færð hjálp til að standast.
Og allt sem gott er og elskuvert
og einnig satt og rétt,
ef efst í huga hefur það
hann við hlið þér stendur þétt.
3. Með Guði gakktu glaðlega,
þú getur átt hann að vin.
Af þakklæti þiggðu gjafirnar hans
sem þrjóta aldrei munu.
Með honum göngum við glöð í lund,
með gleði syngjum þá.
Þinn fögnuður og friður sést
því að faðirinn þig á.
(Sjá einnig 1. Mós. 5:24; 6:9; Fil. 4:8; 1. Tím. 6:6-8.)