SÖNGUR 69
Göngum fram og boðum Guðsríki
1. Fram göngum og Guðsríki boðum
til fólks út um allan heim.
Af elsku til Guðs og til manna
á leiðina bendum þeim.
Við metum vel verkefni okkar
að boða með gleði hans orð.
Á akri Guðs störfum við áfram
og sannleikann berum á borð.
(VIÐLAG)
Göngum fram og boðum hugrökk
Guðs stjórn bæði vítt og breitt.
Göngum fram í tryggð við okkar Guð
sem elskum við svo heitt.
2. Fram sækjum og stöndum þétt saman,
Guðs þjónar með tvenna von.
Jafnt ungir sem aldnir fram ganga
í takt við Guðs eigin son.
Og gleðifrétt þarf fólk að heyra
um ríkið sem brátt tekur við.
Í krafti sem Jehóva gefur
við óttumst ei neitt við hans hlið.
(VIÐLAG)
Göngum fram og boðum hugrökk
Guðs stjórn bæði vítt og breitt.
Göngum fram í tryggð við okkar Guð
sem elskum við svo heitt.
(Sjá einnig Sálm 23:4; Post. 4:29, 31; 1. Pét. 2:21.)