Spáð um framtíð efnahagsmála í heiminum
ÓSTÖÐUGLEIKI á fjárhagsmörkuðum og lítil tiltrú á efnahagssérfræðinga, sem tókst ekki að sjá fyrir hrunið á verðbréfamörkuðunum árið 1987, hefur fengið suma kaupsýslumenn til að leita til stjörnuspekinnar í því skyni að láta spá um fjárhagslega framtíð sína. Þetta kemur fram í tímaritinu Accountancy Age í Lundúnum. Tímaritið segir að „stjörnuspámenn, sem sérhæfa sig í fjármálum, séu að safna sér myndarlegum lista yfir virta viðskiptavini sem sækjast eftir ítarlegum markaðsspám þeirra.“
Einn ráðgjafinn ber saman sveiflur sem hann sér í 30 ára daglegum gögnum um fjárhagsmarkaði og hreyfingar reikistjarnanna. Á þeim byggir hann spár sínar. Fyrir 1987 voru margir tregir til að fylgja ráðum hans en núna eru jafnvel harðsnúnustu fjármálamenn fúsir til að hlusta.
Annar stjörnuspámaður á sviði efnahagsmála teiknar kort byggt á fæðingardegi manna í því skyni að meta skapgerð þeirra og leitar einnig „vísbendinga um hvenær líkleg þróun eigi sér stað í viðskiptalífinu.“ Sá þriðji álítur að sveiflur á silfurmarkaðinum fylgi gangi tunglsins. Þessi stjörnuspámaður telur að í samanburði við venjulega efnahagssérfræðinga gefi viðskiptavinir hans honum „sáralítið svigrúm fyrir rangar spár.“
Sú efnahagsspá er þó til sem öruggt er að rætist, og hún á ekkert skylt við stjörnuspeki. Þessi spá stendur skráð í Biblíunni og er innblásin af Jehóva Guði sem gefur sér alls ekkert „svigrúm fyrir rangar spár.“ Hann er sá Guð sem „ekki lýgur.“ (Títusarbréfið 1:2) Hann lét spámann sinn Esekíel lýsa yfir: „Silfri sínu munu þeir varpa út á strætin, og gull þeirra mun vera þeim sem saur. Silfur þeirra og gull fær eigi frelsað þá.“ — Esekíel 7:19.
Hvenær verður þetta? Í hinni komandi ‚miklu þrengingu‘ sem Jesús Kristur sagði fyrir og Esekíel kallaði ‚reiðidag Jehóva.‘ (Matteus 24:21; Esekíel 7:19) Efnaleg velmegun tryggir ekki björgun, hverju svo sem stjörnuspámenn kunna að spá. Það er einungis með því að treysta Jehóva Guði, frelsaranum mikla, sem hægt er að tryggja öryggi sitt í þessum heimsumbrotum þar sem öll spilling verður upprætt — í stjórnmálum, trúmálum og fjármálum. — Orðskviðirnir 3:5, 6; Sefanía 2:3; 2. Pétursbréf 2:9.